Gamli Valsarinn í stuði þegar Bodö skellti Inter í Meistara­deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kasper Waarts Högh fagnar marki sínu í kvöld en þökk sé því er norska liðið í góðri stöðu.
Kasper Waarts Högh fagnar marki sínu í kvöld en þökk sé því er norska liðið í góðri stöðu. Getty/Chris Brunskill

Meistaradeildarævintýri Bodö/Glimt er hvergi nærri lokið og norska félagið sér nú sæti í sextán liða úrslitum keppninnar í hillingum eftir 3-1 heimasigur á Internazionale Milan í fyrri leik liðanna í umspili Meistaradeildarinnar.

Norðmennirnir fara því með tveggja marka forskot suður til Mílanó í seinni leikinn og eiga góða möguleika á að slá Ítalana út.

Daninn Kasper Waarts Högh, sem varð Íslandsmeistari með Valsmönnum á sínum tíma, var maður kvöldsins.

Högh lagði upp tvö fyrstu mörk Bodö/Glimt og skoraði síðan það þriðja sjálfur.

Sondre Brunstad Fet kom Bodö í 1-0 á 20. mínútu eftir sendingu Högh en Francesco Pio Esposito jafnaði fyrir Inter á 30. mínútu.

Jens Petter Hauge kom Bodö aftur yfir á 61. mínútu eftir sendingu frá Högh og þremur mínútum síðar hafði gamli Valsarinn komið norska liðinu í 3-1.

Það urðu síðan lokatölur leiksins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira