Óvíst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 08:13 Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ekki safnað upplýsingum með kerfisbundnum hætti frá sveitarfélögunum um hversu mörg börn á Íslandi hafa ekki sótt skóla á undanförnum fimm árum, þrátt fyrir skólaskyldu. Vísir/Vilhelm Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ekki upplýsingar um hversu mörg börn á Íslandi sækja ekki skóla, þrátt fyrir skólaskyldu í landinu. Ráðuneytið safnar ekki upplýsingum frá sveitarfélögum um skólasókn barna með kerfisbundnum hætti en miðlægum nemendagrunni verður ætlað að veita ráðuneytinu heildarsýn yfir stöðu mála og hægt verði að nýta gögn þaðan til að bæta gæði skólastarfs, þjónustu, stefnumótun og forgangsröðun stjórnvalda í skólamálum.
Þetta má lesa úr svörum Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, við fyrirspurn Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Miðflokksins, sem dreift var á Alþingi í gær. Nanna spurði meðal annars hversu mörg hafi ekki sótt skóla við upphaf skólaskyldu ár hvert á undanförnum fimm árum. Þá kallaði hún einnig eftir upplýsingum um hverjar væru skilgreindar ástæður fyrir fjarvist barna frá skóla og hversu mörg þeirra hafi dvalist á Íslandi, erlendis eða á óþekktum dvalarstað á þeim tíma sem þau hafi ekki sótt skóla. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, beindi fyrirspurn sinni til mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Í svari ráðherra er í fyrstu rakið hvaða lög gilda um skólaskyldu samkvæmt grunnskólalögum. „Sveitarfélög bera ábyrgð á skólastarfi grunnskóla og skólastjórar hvers grunnskóla bera ábyrgð á skráningu upplýsinga, þar á meðal upplýsinga um skólasókn barna,“ segir meðal annars í svarinu. Meðal annars þurfi sveitarfélög að halda utan um upplýsingar um afstöðu til beiðna um frávik frá skólasókn. Skólaskylda barns hefjist að jafnaði við upphaf skólaárs á því almanaksári sem barnið verður sex ára en foreldrar barns geti sótt um, eða samþykkt, að barn hefji skólagöngu fyrr eða síðar og getur skólastjóri veitt slíka heimild að fenginni umsögn. „Þá geta foreldrar skólaskylds barns sótt um tímabundna undanþágu frá skólasókn í einstökum námsgreinum eða að öllu leyti og er skólastjóra heimilt að veita slíka undanþágu telji hann til þess gildar ástæður,“ segir ennfremur í svarinu. Inga Sæland tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra af Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir ekki svo löngu síðan.Vísir/Vilhelm Hins vegar búi ráðuneytið ekki yfir þeim upplýsingum sem þingmaðurinn spurði um. „Mennta- og barnamálaráðuneyti safnar að svo stöddu ekki með kerfisbundnum hætti upplýsingum frá sveitarfélögum um skólasókn barna og því liggja ekki fyrir upplýsingar hjá ráðuneytinu um hversu mörg börn sóttu ekki skóla við upphaf skólaskyldu undanfarin fimm ár, hver ástæða fjarvista við upphaf skólaskyldu hefur verið né hver dvalarstaður þeirra barna var á umræddum tíma,“ segir í svari Ingu. Hins vegarhafi Miðstöð menntunar og skólaþjónustu unnið að uppbyggingu miðlægs gagnagrunns fyrir leik-, grunn-, og framhaldsskóla sem ætlað er meðal annars að tryggja „að áreiðanlegar og samræmdar upplýsingar um skólastarf séu varðveittar með rekjanlegum hætti,“ þegar hann verður tekinn í gagnið. Loks spurði Nanna um það hvaða stofnanir ríkisins séu upplýstar um það þegar börn á skólaskyldualdri sækja ekki skóla. Í svari ráðherra segir að lögum samkvæmt skuli skólastjóri leita lausna og taka ákvörðun um úrbætur ef misbrestur verður á skólasókn skólaskyldra barna sem ekki skýrast af veikindum eða öðrum gildum ástæðum. Sömuleiðis beri skólastjóra að tilkynna um slík mál til barnaverndarþjónustu.
Alþingi Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Grunnskólar Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira