Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 15:27 Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, kynnti boðaðar breytingar ásamt þremur samráðherrum sínum á föstudaginn. EPA/LISELOTTE SABROE Danska ríkisstjórnin kynnti á föstudaginn umfangsmiklar breytingar á löggjöf um brottvísanir frá landinu sem stjórnvöld þar í landi hafa boðað. Meðal annars hyggjast stjórnvöld lækka þröskuldinn fyrir brottvísanir frá Danmörku vegna glæpa, enduropna sendiráð sitt í Sýrlandi til að liðka fyrir endursendingum Sýrlendinga þangað og efla fjárhagslega hvata fyrir erlenda ríkisborgara til að snúa aftur til baka. Áformin hafa sætt gagnrýni af hálfu þeirra sem vilja meina að þau standist ekki alþjóðlega sáttmála á borð við Mannréttindasáttmála Evrópu, en dönsk stjórnvöld segjast tilbúin að „taka sénsinn“ til að flýta fyrir breyttri túlkun á mannréttindasáttmálanum.
Um allnokkur ár hafa erlendir ríkisborgarar, svokallaðir þriðjaríkisborgarar frá löndum utan EES, sem fremja alvarleg afbrot verið dæmdir til brottvísunar frá Danmörku. Nú boðar ríkisstjórnin breytingar sem fela í sér að enn fleiri sem fremja brot á danskri grundu geti átt brottvísun yfir höfði sér. Þannig fela boðaðar breytingar í sér að þriðjaríkisborgarar sem dæmdir eru í minnst eins árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir alvarlega glæpi geti verið vísað úr landi, óháð tengslum þeirra við Danmörku. Þetta hafa sérfræðingar bent á að geti stangast á við ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu, einkum 8. grein sáttmálans um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu. Fjárhagslegir hvatar til heimferðar Þá stendur til að hækka stuðningsgreiðslur vegna sjálfviljugrar heimferðar flóttafólks og þeirra sem komið hafa til landsins á grundvelli fjölskyldusameiningar, sem hafa misst dvalarleyfi eða verið synjað um framlengingu, að því gefnu að viðkomandi fari úr landi áður en frestur til brottfarar rennur út. Þá á einnig að tvöfalda styrk til heimferðar til hælisleitenda sem hafa fengið synjun og fara sjálfviljugir úr landi, auk þess sem tímabilið sem útlendingar hafa til að endurgreiða heimferðarstyrk ef þeir snúa aftur til Danmerkur verður tvöfaldað. Rasmus Stoklund, ráðherra útlendingamála, Troels Lund Poulsen, varnarmálaráðherra og varaforsætisráðherra, Mette Frederiksen, forsætisráðherra, og Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra, kynntu áformin á blaðamannafundi á föstudaginn. EPA/LISELOTTE SABROE Stjórnvöld hyggjast einnig forgangsraða 25 dönskum milljónum í fjárhagslega hvata í gegnum þróunarsamvinnu til ríkja til að liðka fyrir móttöku ríkisborgara landanna frá Danmörku þar sem ríkin „fá eitthvað í staðinn,“ eins og það er orðað í fréttatilkynningu frá ráðuneyti útlendingamála. Þá á að efla rafræna vöktun gegn erlendum glæpamönnum í svokölluðum brottfararstöðum í Danmörku og efld öryggisgæsla boðuð við slíka stöð í Kærshovedgård. Nýtt embætti „brottvísunarsendiherra“ Athygli vekja einnig áform um samstarf við stjórnvöld í Afganistan og enduropnun dansks sendiráðs í Sýrlandi, einkum með það fyrir augum að liðka fyrir þvinguðum brottflutningum sýrlenskra brotamanna frá Danmörku til heimalandsins, svo fátt eitt sé nefnt. Einnig er stefnt að því að útnefna svokallaðan „brottvísunarsendiherra“ og þá er gengið út frá því með boðuðum breytingum að flóttafólk komi aðeins tímabundið til Danmerkur. Með því vilja stjórnvöld kanna hvort hægt sé, innan ramma alþjóðasamninga, að afturkalla dvalarleyfi flóttafólks í meira mæli en nú er. Tillögurnar í heild má finna hér. Ísland tekur undir túlkun danskra stjórnvalda Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, ítrekaði á blaðamannafundi í síðustu viku að lögin sem nú er verið að boða eigi ekki að beinast gegn þeim útlendingum sem komi til Danmerkur og taki virkan þátt í samfélaginu og fylgi lögum og reglum, heldur gegn þeim sem komi „til besta lands í heimi“ og eyðileggi fyrir öllum öðrum. Reglurnar eigi að beinast gegn brotamönnum sem beiti ofbeldi, stundi skipulagða glæpastarfsemi eða fremji önnur alvarleg brot. Blaðamannafundurinn stóð yfir í um hálfa klukkustund. EPA/LISELOTTE SABROE Í öðru lagi sé markmiðið að stuðla að endurtúlkun ákvæða mannréttindasáttmálans í gegnum danska löggjöf. Dönskum stjórnvöldum hafi nýverið tekist að fá meirihluta þeirra ríkja sem aðild eiga að Mannréttindasáttmála Evrópu til liðs við sig um breytta túlkun þeirra ákvæða sáttmálans, sem í sumum tilfellum hafi til þessa verið túlkuð brotamönnum í hag, frekar en brotaþolum að sögn Frederiksen. Það var Danmörk í samstarfi við ítölsk stjórnvöld sem höfðu framgöngu um málið, en Ísland er meðal þeirra 27 ríkja sem taka undir þessa breyttu túlkun sem nánari grein er gerð fyrir í yfirlýsingu frá því í desember síðastliðnum. Nokkur stór ríki á borð við Frakkland og Þýskaland taka þó ekki undir yfirlýsinguna. Taki sénsinn með því að fara yfir á rauðu Danska ríkisstjórnin gengst við því að fara óhefðbundnar leiðir til að ná sínu fram hvað varðar auknar brottvísanir, þrátt fyrir ákvæði mannréttindasáttmálans. Í stað þess að bíða í einhver ár eftir að dómstólar breyti sinni túlkun, leitist dönsk stjórnvöld nú við að breyta túlkun í takt við eigin afstöðu með því að setja um það löggjöf heima fyrir fyrst. Fram kom í máli ráðherranna á blaðamannafundinum að þau geri sér grein fyrir því að þannig séu dönsk stjórnvöld að taka ákveðna „kerfislega áhættu“ og séu meðvituð um að þau gætu með þessu reynst brotleg fyrir Mannréttindadómstólnum í Strassbourg ef á reynir eftir að lögin hafa tekið gildi. Þann „séns“ eru stjórnvöld þó tilbúin að taka að því er fram kom í máli forsætisráðherrans. Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins DR um málið í síðustu viku var meðal annars rætt við Jens Elo Petersen Rytter, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla og sérfræðing í mannréttindalögum. Hann var meðal annars spurður hvort stjórnvöld væru með þessu í raun að ganga gegn gildandi réttarvenju og Mannréttindasáttmála Evrópu. Petersen Rytter svaraði á þá leið að þarna væru stjórnvöld „að keyra yfir á rauðu“ með því að láta vaða í umræddar breytingar í þeirri von „að ljósið verði síðan grænt“ með nýrri túlkun í takt við vilja meirihluta aðildarríkjanna. Það sé þó ekki sjálfgefið að svo verði.
Danmörk Hælisleitendur Flóttamenn Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ Innlent John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Loka heiðinni og opna fjöldahjálparstöð: Biðja „ALLA“ um að halda sig heima Veður Rúta út af og Þingvallavegi lokað Innlent Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Erlent Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Innlent Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Innlent Hellisheiði er lokuð Innlent Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Innlent Fleiri fréttir Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Sjá meira