Trump hikar ekki við að færa leiki á HM úr hættulegum borgum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. september 2025 09:30 Donald Trump og Gianni Infantino, forseti FIFA, með verðlaunagripinn á HM félagsliða sem fór fram í Bandaríkjunum í sumar. epa/CJ GUNTHER Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann muni færa leiki á heimsmeistaramótinu í fótbolta úr borgum sem hann telur ótryggar.
HM fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó á næsta ári. Þetta verður fyrsta heimsmeistaramótið með 48 liðum. Af 104 leikjum á HM fara 78 fram í Bandaríkjunum, í alls ellefu borgum. „Þetta verður öruggt á HM. Ef við höldum að örygginu sé ógnað færum við leikina í aðra borg,“ sagði Trump við fréttamenn í forsetaskrifstofunni í Hvíta húsinu. Trump var spurður út í leiki sem verða í borgum þar sem Demókratar ráða ríkjum, eins og Seattle og San Francisco. Hann nefndi einnig Los Angeles þar sem næstu Ólympíuleikar fara fram eftir þrjú ár. „Ef við höldum að það sé jafnvel örlítil hætta fyrir HM eða Ólympíuleikana, sérstaklega heimsmeistaramótið, færum við leikina,“ sagði Trump sem er í nánu sambandi við Gianni Infantino, forseta FIFA. Bandarísku borgirnar ellefu sem hýsa leiki á HM eru Atlanta, Boston, Dallas, Houston, Kansas City, Los Angeles, Miami, New York/New Jersey, Philadelphia, San Francisco og Seattle. Heimsmeistaramótið hefst 11. júní á næsta ári og lýkur með úrslitaleik á MetLife leikvanginum í New Jersey 19. júlí.
HM 2026 í fótbolta Donald Trump Mest lesið Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Sport Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Fótbolti Fleiri fréttir Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Löggan þorði ekki að þiggja miða HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Sjá meira