„Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. ágúst 2025 12:21 Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, segir sérstakt fyrir Eyjamenn að spila á miðri Þjóðhátið en á ekki von á því að veðrið verði vont þegar KR kemur í heimsókn. vísir / diego / guðmundur Vonskuveðrið í Vestmannaeyjum er að mestu gengið yfir en mun þó hafa einhver áhrif á Þjóðhátíðarleik ÍBV og KR í Bestu deild karla. „
Veðrið er bara þokkalegt, það versta gengið yfir. Annars værum við ekki að spila, ef þetta væri eins og í gær. Það er einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif á leikinn… Það var snarvitlaust veður hérna í nótt, í kringum miðnætti, en það er miklu betra veður núna“ segir Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV. „Það er einhver gjóla sem mun kannski hafa einhver áhrif á leikinn, en þetta er ekkert sem menn hafa ekki lent í áður“ hélt hann svo áfram og sagði Vestmannaeyinga öllu vönu. Þjóðhátíðarleikurinn er árleg hefð í Vestmannaeyjum og er, samkvæmt venju, eini meistaraflokksleikurinn sem fer fram á Íslandi í dag. Þorlákur segir sérstakt fyrir Eyjamenn að spila á þessum degi. „Auðvitað er skrítið fyrir Eyjamenn að spila þegar það er svona mikið í gangi. Það eru skiptar skoðanir um að spila á laugardeginum hjá okkur heimamönnum. En þetta er náttúrulega stærsti leikur ársins, flestir áhorfendur sem koma á þennan leik og við hlökkum bara til að spila við KR-inga“ segir Þorlákur. Fyrir leik munar aðeins einu stigi á ÍBV og KR í neðri hluta deildarinnar.vísir / diego Leikur ÍBV og KR hefst klukkan tvö og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport frá 13:45.
ÍBV Besta deild karla KR Mest lesið Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti „Lífshættulegt“ gólf losnaði í einni af EM-höllunum Handbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Fleiri fréttir Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Sjá meira