Sjáðu Stefán Inga skora fyrstu þrennu Íslendings í næstum því fimm ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2025 20:30 Stefán Ingi Sigurðarson fagna einu marka sinna í leiknum. Skjámynd/TV 2 Sport Stefán Ingi Sigurðarson varð um síðustu helgi aðeins níundi íslenski leikmaðurinn til að skora þrennu í norsku úrvalsdeildinni. Það voru næstum því fimm ár liðin frá þeirri síðustu.
Nú má sjá þessi þrjú mörk frá Stefáni hér fyrir neðan en mörk íslenska framherjans komu öll í fyrri hálfleiknum. Stefán Ingi skoraði mörkin sín á 8., 22. og 39. mínútu. Fyrstu tvö mörkin skoraði hann með skalla en það síðasta með góðu vinstri fótar skoti. Aðeins einn annar Íslendingur hefur skorað þrennu í fyrri hálfleik í norsku úrvalsdeildinni og það var einmitt sá sami og skoraði síðustu þrennu. Viðar Örn Kjartansson var kominn með þrennu eftir aðeins 23 mínútur í 5-0 sigri Vålerenga á Brann í september 2020. Viðar Örn og Stefán Ingi eru þeir einu sem hafa fullkomnað þrennu fyrir hálfleik. Þeir eru líka þeir einu frá Íslandi sem hafa skorað þrjú mörk í einum hálfleik í efstu deild í Noregi. Viðar skoraði alls þrjár þrennur í norsku úrvalsdeildinni eða jafnmargar og Veigar Páll Gunnarsson. Þeir deila íslenska metinu. Hinir Íslendingarnir sem hafa skorað þrennu í norsku úrvalsdeildinni eru Heiðar Helguson, Ríkharður Daðason, Stefán Gíslason, Björn Bergmann Sigurðarson, Matthías Vilhjálmsson og Pálmi Rafn Pálmason. Hér fyrir neðan má sjá mörk Stefáns en þau koma eftir 42 sekúndur af myndbandinu, eftir eina mínútu og 53 sekúndur og eftir þrjár mínútur og tuttugu sekúndur. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=-zXbcWKtulk">watch on YouTube</a>
Norski boltinn Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Sjá meira