Fjögur mörk og tvö rauð í Grindavíkursigri í Laugardalnum Smári Jökull Jónsson skrifar 18. maí 2025 21:24 Grindvíkingar fögnuðu í Laugardalnum í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Grindavík vann góðan sigur á Þrótti Reykjavík þegar liðin mættust á Þróttarvellinum í Laugardal í dag. Grindvíkingar skoruðu fjögur mörk í leiknum en misstu tvo menn af velli með rautt spjald.
Grindvíkingar voru án sigurs eftir fyrstu tvær umferðirnar í Lengjudeildinni eftir tap gegn Selfyssingum í fyrstu umferð og jafntefli gegn Fjölni í annarri umferð. Þróttarar unnu hins vegar gegn Keflavík í öðrum leik sínum eftir að hafa gert jafntefli gegn Leikni í fyrsta leik. Það voru hins vegar gestirnir frá Grindavík sem voru sterkari aðilinn í kvöld. Ármann Finnbogason og Breki Hermannsson komu liðinu í 2-0 í fyrri hálfleik en Eiríkur Þorsteinsson Blöndal minnkaði muninn í 2-1 örskömmu áður en flautað var til hálfleiks. Í síðari hálfleik komust Grindvíkingar í 4-1 með tveimur mörkum á fjórum mínútum um miðjan hálfleikinn, fyrst skoraði Adam Árni Róbertsson og Breki bætti við öðru marki stuttu síðar. Fjórum mínútum eftir mark Breka var Adam Árni hins vegar rekinn af velli og Jakob Gunnar Sigurðsson skoraði sárabótamark fyrir Þróttara á lokamínútunni. Í uppbótartíma fékk Sölvi Snær Ásgeirsson síðan beint rautt spjald fyrir brot og Grindvíkingar luku því leik tveimur færri.
Lengjudeild karla Mest lesið Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Sjáðu Loga Geirs hengja Frakkann og tryggja sér titil Sport Í landsliðið því lítill ættingi er á leiðinni Körfubolti Sjóðheitur Sesko sendi United upp í þriðja sæti Enski boltinn Tilþrif Elvars þau bestu í heimi á föstudaginn Körfubolti Búin að þríbæta þrjátíu ára met Guðrúnar Sport Arsenal vann hornspyrnukonsert Enski boltinn Sjáðu Kristian skora og afgreiða Feyenoord Fótbolti Fleiri fréttir Allir sem hylji munninn verði reknir út af Dramatík hjá gömlu konunni í Rómarborg Losnar um pressu á Sverrislausan Benítez Arsenal vann hornspyrnukonsert Dramatík hjá Hákoni Sögulega slakur árangur FCK Fjórða tap Tottenham í röð og fallhættan heldur áfram Sjóðheitur Sesko sendi United upp í þriðja sæti Sjáðu Kristian skora og afgreiða Feyenoord Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Harmar baulið á leikmenn sem fengu að brjóta föstu Sjáðu mörkin: Samherji Hákonar algjör klaufi og mikið drama í lokin Sjáðu Semenyo setja pressu á Arsenal og markasúpu Liverpool „Ólíklegt“ að Íran fari á HM vegna árásarinnar Hristu af sér Bodö tapið og eru skrefi nær titlinum Kane og Kimmich kláruðu Dortmund Semenyo hetjan og stutt í Arsenal Þrenna Yamal kláraði Villarreal Samherji skoraði tvö hjá Hákoni í hádramatískum slag Tómas Bent og félagar auka forskotið á toppnum Aldrei spurning á Anfield Liðin úr Bestu röðuðu inn mörkum Tveir leikmenn KFUM meðal þeirra handteknu Katla veik og Karitas kölluð til Spánar Evanilson kom í veg fyrir sætaskipti Hákon Rafn fær langþráð tækifæri í dag Segir stjörnuleikmanni sínum að hætta að hugsa um Arsenal „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Sjá meira