Erlent

Ind­land gerir á­rás á Pakistan

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Yfirvöld í Pakistan segja að flugskeyti Indverja hafi hæft þrjú skotmörk.
Yfirvöld í Pakistan segja að flugskeyti Indverja hafi hæft þrjú skotmörk. X

Indland hefur gert árás á Pakistan með flugskeytum á níu staði í Pakistan og í þeim hluta Kashmir-héraðs þar sem Pakistanar ráða ríkjum.

Í yfirlýsingu frá indverskum yfirvöldum segir að ríkisstjórnin hafi sett verkefnið „Operation Sindoor“ af stað og skotið niður innviði hryðjuverkamanna í Pakistan og í Kashmír héraði, „þaðan sem hryðjuverkaárásum gegn Indlandi hefur verið stýrt.“

„Aðgerðirnar hafa verið skilvirkar og útreiknaðar. Engar herstöðvar í Pakistan voru skotmark árásanna,“ segir í yfirlýsingunni.

Talsmaður pakistanska hersins sagði í yfirlýsingu að indversk flugskeyti hefðu hæft þrjú skotmörk í Pakistan. Hann sagði að árásin væri heigulsháttur og að Pakistanar myndu svara fyrir sig.

„Aumkunarverð árás“

Í frétt Telegraph er haft eftir pakistönskum yfirvöldum að minnst eitt barn sé látið og tveir slasaðir eftir árásirnar. Eitt flugskeytið hafi lent á mosku í borginni Bahawalpur í Punjab héraði, þar sem sagt er að barn hafi látist og kona og karl slasast.

„Þetta er aumkunarverð árás og henni var beint gegn saklausum borgurum í skjóli nætur,“ sagði talsmaður pakistanska hersins í viðtali við ARY news.

Spennan milli Indlands og Pakistan hefur aukist jafnt og þétt eftir að ráðist var á ferðamenn í indverska hluta kasmír-héraðs fyrir tveimur vikum síðan. Minnst tuttugu og fjórir létu lífið þegar hópur manna hóf skotrhíð í átt að ferðamönnunum.

Enginn lýsti yfir ábyrgð á árásinni en Indverjar og Pakistanar hafa lengi deilt um yfirráð yfir héraðinu og stjórna bæði löndin hlutum þess. Þarlendir miðlar fullyrtu sumir hverjir að vopnuðu mennirnir hefðu haft tengsl við pakistanska uppreisnarhópa.

Gerðu síðast loftárás 2019

Indverjar og Pakistanar, sem eiga báðir kjarnorkuvopn, hafa háð þrjú stríð gegnum tíðina, frá því Indlandi var skipt upp milli hindúa og múslima í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar. Síðasta stríðið átti sér stað árið 1971 en reglulega hefur komið til átaka þeirra á milli, núna síðast árið 2019.

Fyrsta stríð ríkjanna var um Kasmír-hérað sem hefur um árabil þótt eitt mesta spennusvæði heims, ef svo má segja.

Árið 2019 gerðu Indverjar loftárásir í Pakistan, eftir að vígamenn hryðjuverkasamtaka sem kallast Jaish-e-Mohammed, gerðu árás yfir landamæri ríkjanna í Kasmír. Indverjar hafa um árabil sakað Pakistana um að leyfa slíkum samtökum að starfa í Pakistan og hafa einni sagt að öryggissveitir í Pakistan hafi starfað með hryðjuverkasamtökum.

Sjá ítarlega frétt um spennuna milli Pakistan og Indlands hér: Með bæði betri og fleiri vopn en síðast

Fréttin hefur verið uppfærð


Tengdar fréttir

Mikil reiði eftir árásina í Kasmír

Mikil reiði er á meðal almennings á Indlandi eftir að byssumenn gerðu árás á hóp ferðamanna í Kasmír héraði og drápu tuttugu og sex hið minnsta.

Spennan eykst milli Indlands og Pakistan

Aukin spenna er á milli Indlands og Pakistan vegna yfirráð í Kashmír héraðinu. Íslamskir vígamenn skutu 26 manns til bana á svæði Indlands. Landamærunum milli landanna hefur verið lokað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×