Mikilvægur sigur Villa í Meistaradeildarbaráttunni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. maí 2025 13:27 Youri Tielemans fagnar sigurmarki sínu gegn Fulham. getty/Harry Murphy Aston Villa vann 1-0 sigur á Fulham í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Youri Tielemans skoraði eina mark leiksins. Villa er í 7. sæti deildarinnar með sextíu stig, jafn mörg og Chelsea sem er í 5. sætinu sem er síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. Villa á eftir að leika þrjá leiki á tímabilinu. Tielemans skoraði eina mark leiksins á 12. mínútu. Hann skallaði þá hornspyrnu Johns McGinn, fyrirliða Villa, í netið og tryggði liðinu sjötta sigurinn í síðustu sjö deildarleikjum. Fulham ógnaði lítið í leiknum og tókst ekki að jafna metin þrátt fyrir að hafa nægan tíma til þess. Þetta var þriðja tap Fulham í síðustu fjórum leikjum. Liðið er í 8. sæti deildarinnar með 51 stig. Enski boltinn