Alþjóðasamfélagið þurfi að venjast nýrri taktík Trump Lovísa Arnardóttir skrifar 9. febrúar 2025 14:49 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra Samfylkingarinnar og Pawel þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Vísir/Eina og Vilhelm Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og Pawel Bartoszek alþingismaður og formaður utanríkismálanefndar segja alþjóðasamfélagið þurfa að venjast nýrri taktík í pólitík með tilkomu Donald Trump í embætti forseta Bandaríkjanna í annað sinn. Gott sé fyrir Íslendinga að vera í fleiri bandalögum en færri. „
Þetta er hans taktík. Hann hendir öllum spilastokknum upp í loft og maður veit ekki hvar hann lendir,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra um Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og fullyrðingar hans um Grænland. Ingibjörg ræddi utanríkismál, Bandaríkin og Grænland í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Með henni var Pawel Bartoszek. Ingibjörg segir Trump geta komið með annað útspil hvenær sem er og nefnir sem dæmi yfirlýsingar hans varðandi Gasa. Hún segir utanríkisstefnu Trump vera „19. aldar“ og byggja á landfræðilegri stöðu og legu. Þess vegna horfi hann til Kanada, Panama og Grænlands. „Að þetta sé áhrifasvæði Bandaríkjanna og svæði sem þeir stjórna. Og við erum auðvitað inni á því áhrifasvæði og við þurfum að velta fyrir okkur hvað þetta felur í sér fyrir okkur.“ Það sé mikilvægt í þessari stöðu að vera ekki með öll eggin í einni körfu. Íslendingar gætu til dæmis í þessari stöðu horft meira til Evrópu. Djarfar hugmyndir í samningaviðræður Pawel tekur undir með Ingibjörgu með stíl Trump. Hann hafi djarfar hugmyndir og noti þær í samningaviðræðum. Sem dæmi hafi tollastríðsyfirlýsingar hans orðið þess valdandi að landamæraeftirlit hafi verið eflt við landamæri Mexíkó og Kanada. Pawel segir að þannig þurfi að taka yfirlýsingum Trump með fyrirvara. „Þetta er ákveðin taktík sem við þurfum að venjast en í því ljósi myndi ég ekki fara í of miklar „hvað ef“ fabúleringar út af einhverjum ítrustu hugmyndum,“ segir Pawel. Hann tekur undir með Ingibjörgu og segir gott fyrir Íslendinga að vera í fleiri bandalögum en færri. Í því samhengi nefnir hann fund leiðtoga Norðurlandanna sem fjallað var um nýlega sem Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, var ekki á. „Það er fjöldi funda í hverri viku sem við mætum ekki á vegna þess að við erum ekki partur af þeim hópi sem þar fundar.“ Það sé því skynsamlegt að efla tengslin við Evrópu og EES-svæðið allt. Það sé svo þjóðarinnar að ákveða hversu langt verður stigið í þeim málum. Valdastjórnun Ingibjörg segir að með Trump komi ný tegund af stjórnun inn í Hvíta húsið. Hingað til hafi það ekki skipt okkur, eða alþjóðasamfélagið, það miklu máli hvort það sé Repúblikani eða Demókrati í Hvíta húsinu. Það hafi verið stigsmunur en ekki eðlismunur á því. „Þetta er mjög mikil valdastjórnun,“ segir hún og að allt sem heiti „diplómasía“ sé lagt til hliðar og stjórnað með valdi, valdboði og stórum yfirlýsingum. Við eigum eftir að læra á þetta, sem og aðrir. „Þetta er ný staða sem við stöndum andspænis,“ segir Ingibjörg og að við þurfum að læra inn á þessa taktík. Pawel segir nálgun Trump beinskeyttari en fólk í utanríkisþjónustu hefur vanist hingað til. Það verði þó að taka fram að staðan alþjóðlega er ekki alslæm. Sem dæmi hafi tekist að koma á vopnahléi á Gasa og það virðist halda. Stuðningur við Úkraínu hafi haldist sömuleiðis eftir að hann tók við en margir héldu að honum myndi ljúka við það. Þá segir Pawel að hann heyri, frá Úkraínumönnum, að það örli mögulega þar á bjartsýni um að eitthvað geti gerst sem geti bundið enda á átökin þar. Ingibjörg segir að það sé rétt hjá Trump að við getum ekki vanist því að í Úkraínu sé stríð, að á Gasa sé stríð. Það sé ekki hægt að halda svona áfram. Það sama sé hægt að segja um alþjóðakerfið, sem hún segir alla vita að sé handónýtt. Hann vilji henda því á ruslahauga sögunnar. Það sé afdrifarík og hættuleg ákvörðun en mögulega geti eitthvað gott komið út úr því. Pawel segir það samt sem áður hag allra að það sé eitthvað alþjóðakerfi. Það sé ekki gott ef það er þannig að „sá sterkasti ræður“. Því verði að standa með öðrum þjóðum af svipaðri stærð og spyrna við fæti. Bandaríkin ekki lögregla heimsins Ingibjörg segir Trump tala um Bandaríkin eigi ekki að vera lögregla heimsins. Þau eigi að gæta sinna hagsmuna og borgar þeirra sem skipti máli, en ekki að þeir séu fremstir á meðal jafningja í alþjóðlegu samstarfi. „Hann vill að Bandaríkin njóti stærðar sinnar og geti beitt vöðvaafli sínu, en ekki í gegnum alþjóðastofnanir,“ segir Ingibjörg og það sé ný mynd í alþjóðakerfinu. Niðurskurður hans og lokun á þjónustu USAid hafi til dæmis verulega mikið að segja í fjölmörgum þróunarríkjum sem hafi hingað til stólað á stofnunina fyrir rekstur heilbrigðis- og menntakerfis. „Þetta hefur mikil áhrif og ég er viss um að í mörgum þróunarríkjum er fólk orðið desperat. Þá er ég ekki bara að tala um stjórnvöld, heldur almenning sem þarf mikið að leita til þessara stofnanna,“ segir Ingibjörg. Hún segir stofnanir Sameinuðu þjóðanna sem hafi þurft að reiða sig á fjármagn frá Bandaríkjunum ekki vita almennilega hvert þau séu að stefna. Það hafi enginn til dæmis búist við því að hann myndi ganga úr Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Viðtalið var lengra og hægt er að hlusta á það hér að ofan.
Bandaríkin Sprengisandur Grænland Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Donald Trump Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Tengdar fréttir Afturkallar öryggisheimildir Biden Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur afturkallað öryggisheimildir Joe Biden, forvera hans í embætti forseta. Biden gerði slíkt hið sama þegar hann var forseti í kjölfar innrásarinnar í þinghúsið þann 6. janúar 2021. Í tilkynningu Trump segir að auk þess að afturkalla öryggisheimildina eigi að láta af daglegum öryggisfundum með Biden. 8. febrúar 2025 08:54 Sagði upp hjá DOGE vegna rasískra ummæla Ungur starfsmaður DOGE, hefur sagt af sér eftir að hann var bendlaður við síðu á samfélagsmiðli þar sem hann lét fjölda rasískra ummæla falla. Hinn 25 ára gamli Marko Elez, hefur komið að vinnu DOGE við að skera verulega niður hjá alríkinu í Bandaríkjunum, undir stjórn Elons Musk, auðugasta manns heims. 7. febrúar 2025 15:59 Einn höfunda Project 2025 aftur háttsettur í Hvíta húsinu Öldungadeild Bandaríkjaþings staðfesti í gær tilnefningu Russel Vought í embætti yfirmanns fjárlagaskrifstofu forsetaembættisins. Það er sama áhrifamikla embætti og hann gegndi í fyrri stjórnartíð Trumps en í millitíðinni var Vought einn aðalhöfunda hins umdeilda plaggs, Project 2025. 7. febrúar 2025 09:52 Mest lesið Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Erlent Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi Innlent Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Innlent Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Innlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark Innlent Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Innlent Fleiri fréttir Styrkti karlasamtök þvert á ráðleggingar matsnefndar Ræddu undanþágu losunarheimilda Brutu stjórnsýslulög við útgáfu hvalveiðileyfis Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Ljósvistarhönnuður hoppar hæð sína af gleði vegna breytinga Skoða dóma MDE í ráðuneyti og refsiréttarnefnd Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi „Látið undan þrýstingi stóru fyrirtækjanna í búvöruframleiðslu“ Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Bleikja strauk út í sjó úr landeldi Fundað um Grænland og Inga vill aðgreina eftir íslenskukunnáttu Dómur MDE hljóti að vera stjórnvöldum alvarlegt umhugsunarefni Á skilorði eftir að hafa kýlt, skallað og bitið konu sína Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark 90 prósentum landsmanna þótti skaupið gott Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Alþingi kemur saman í dag eftir jólafrí Vongóð um stuðning Miðflokksins Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Notað á Íslandi þrátt fyrir að hafa mistekist annars staðar Bláklukka bar þremur lömbum á bænum Viðvík í Skagafirði Borgin beri ábyrgð sem eigandi Grænlendingar hnykla vöðvana og altjón í Gufunesi Mál látins manns komið til ákærusviðs Fellur frá máli sínu á hendur Hödd Fjárlögin komi í veg fyrir fjölgun nemenda Upplýsingakerfi liggur niðri og ekki hægt að hafa eftirlit Veittu ökumanni eftirför sem endaði á ljósastaur Neitar að hafa sigað lögmönnum borgarinnar á Pétur Sjá meira
Afturkallar öryggisheimildir Biden Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur afturkallað öryggisheimildir Joe Biden, forvera hans í embætti forseta. Biden gerði slíkt hið sama þegar hann var forseti í kjölfar innrásarinnar í þinghúsið þann 6. janúar 2021. Í tilkynningu Trump segir að auk þess að afturkalla öryggisheimildina eigi að láta af daglegum öryggisfundum með Biden. 8. febrúar 2025 08:54
Sagði upp hjá DOGE vegna rasískra ummæla Ungur starfsmaður DOGE, hefur sagt af sér eftir að hann var bendlaður við síðu á samfélagsmiðli þar sem hann lét fjölda rasískra ummæla falla. Hinn 25 ára gamli Marko Elez, hefur komið að vinnu DOGE við að skera verulega niður hjá alríkinu í Bandaríkjunum, undir stjórn Elons Musk, auðugasta manns heims. 7. febrúar 2025 15:59
Einn höfunda Project 2025 aftur háttsettur í Hvíta húsinu Öldungadeild Bandaríkjaþings staðfesti í gær tilnefningu Russel Vought í embætti yfirmanns fjárlagaskrifstofu forsetaembættisins. Það er sama áhrifamikla embætti og hann gegndi í fyrri stjórnartíð Trumps en í millitíðinni var Vought einn aðalhöfunda hins umdeilda plaggs, Project 2025. 7. febrúar 2025 09:52