Hætta við leikinn í miðnætursólinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2025 18:00 Leo Cornick og félagar í Tromsö spiluðu miðnæturleik í fyrra en fá ekki að endurtaka það í sumar. Getty/Craig Foy/Patrick Pleul Norska knattspyrnusambandið hefur fært til fyrir fram planaðan miðnætursólarleik Tromsö og Vålerenga sem verður í framhaldinu af afsala sér því nafni.
Leikur liðanna í norsku úrvalsdeildinni átti að fara fram í miðnætursólinni í Tromsö sem er borg mjög norðarlega í Noregi. Vålerenga tilkynnti ákvörðunina á heimasíðu sinni en þar kom fram að leikurinn hafi verið færður til 18.45 að staðartíma. Hann átti að hefjast klukkan tíu um kvöldið og standa fram yfir miðnætti. Leikurinn fer samt áfram fram þann 31. maí. Nettavisen segir frá. Ástæðan fyrir að leikurinn er ekki spilaður seinna um kvöldið er úrslitaleikur Meistaradeildarinnar sem fer fram sama kvöld. Hann byrjar klukkan níu að staðartíma í Noregi. Forráðamenn deildarinnar og Tromsö óttuðust samkeppnina við Meistaradeildina enda vilja flestir fótboltaáhugamenn horfa á þann leik. Það hefði líklega þýtt slaka mætingu á heimaleik Tromsö manna. Miðnætursólarleikurinn heppnaðist vel í norsku deildinni í fyrra en þá mættu 5267 manns á leik Tromsö og KFUM Oslo. KFUM liðið vann 2-1 og fór suður með öll þrjú stigin. Nú er spurning hvort að þetta gefi KA-mönnum einhverjar hugmyndir um að spila einn af heimaleikjum sínum í miðnætursólinni á Akureyri í sumar.
Norski boltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Fleiri fréttir HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Sjá meira