Tyrkir urðu í kvöld áttunda og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins eftir 2-1 sigur á Austurríkismönnum í lokaleik sextán liða úrslitanna.
Tyrkir voru síðast í átta liða úrslitum Evrópumótsins fyrir sextán árum síðan en þá fór liðið alla leið í undanúrslitin á EM 2008.
Miðvörðurinn Merih Demiral var maður kvöldsins en auk þess að eiga stórleik í vörninni þá skoraði hann bæði mörk liðsins.
Demiral hafði aðeins skorað tvö landsliðsmörk á ferlinum fyrir leikinn í kvöld en skaut þjóð sinni áfram í hóp átta bestu þjóða Evrópu.
Bæði mörkin hans komi eftir hornspyrnur og það fyrra eftir aðeins 57 sekúndna leik. Demiral var þá á réttum stað í markteignum eftir klaufagang í austurrísku vörninni. Seinna markið skoraði Demiral með skalla á 59. mínútu.
Varamaðurinn Michael Gregoritsch minnkaði muninn í 2-1 á 66. mínútu og setti mikla spennu í leikinn.
Austurríkismenn höfðu hrifið marga með frammistöðu sinni á mótinu en réðu ekki vel við það að vera stóra liðið í kvöld. Það er líka áfall fyrir öll lið að fá á sig mark á fyrstu mínútu í svo mikilvægum leik.
Tyrkirnir fjölmenntu á áhorfendapallana og stuðningurinn var frábær. Leikmenn tyrkneska liðsins spiluðu af sama krafti inn á vellinum og tryggðu sér frábæran sigur. Þeir fá nú að mæta Hollandi í átta liða úrslitum keppninnar.