Veður

Vonskuveður um allt land og vegir víða ó­færir

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Það hefur þurft að aðstoða fasta bíla víðs vegar um landið.
Það hefur þurft að aðstoða fasta bíla víðs vegar um landið. Björgunarsveitin Jökull

Vonskuveður með mikilli snjókomu gengur yfir Austfirði og Norðurland en víða hefur snjóað og verið mjög hvasst um vestanvert landið. Vegir eru lokaðir um allt land og sums staðar væntir ekki fregna fyrr en á morgun.

Það hefur þurft að aðstoða fólk í föstum bílum á Snæfellsnesi og á Möðrudalsöræfum og varar Veðurstofan við aukinni hættu á snjóflóðum af mannavöldum. Ekki þykir þó tilefni til að loka vegum þess vegna. Fólk er hvatt til að fylgjast með gangi mála á síðu Vegagerðarinnar og Veðurstofunnar ef það hyggst fara í ferðalög.

Gripið var til rýmingaaðgerða á Seyðisfirði og Neskaupstað sökum snjóflóðahættu í gærkvöldi. Íbúum þriggja húsa á Ránargötu á Seyðisfirði var gert að rýma heimili sín en í Neskaupstað er fyrst og fremst um iðnaðarhúsnæði að ræða.

Fundi Veðurstofu, Vegagerðar og almannavarna lauk fyrir skemmstu. Þar kom fram að búist sé við áframhaldandi úrkomu og skafrenningi fram til morguns en þó minni úrkomu en spáð var. Ekki er talin hætta utan rýmdra svæða.

Svanur Þorvaldsson forstöðumaður Vegagerðarinnar segir stöðuna vera ágæta á Snæfellsnesinu en vegir eru ófærir víða um land. Norðanmegin á Snæfellsnesi er skafrenningur og unnið er á vegum byggða á milli. Sunnanmegin er aðallega mikið rok og hálka en Vatnaleiðin er fær að sögn Svans. Fróðárheiði verður ekki opnuð í dag.

Víða lokað fyrir vestan og norðan

Vegurinn við Þröskuld er alls ófær og hafa bíll og blásari verið ræstir út til að vinna þar. Upplýsinga um Þröskuld er þó ekki að vænta fyrr en upp úr hádegi. Mögulega verður umferð beint um Vatnsdalsheiði að Þröskuldi lokuðum en ekkert liggur fyrir eins og er. Steingrímsfjarðarheiði og Dynjandisheiði eru ófærar en verið er að meta stöðuna á Steingrímsfjarðarheiði, segir Svanur.

Fyrir norðan er vegurinn við Þverárfjall lokaður og helst lokaður fram eftir degi. Ljósavatnsskarð er á óvissustigi og getur lokast með stuttum fyrirvara. Öxnadalsheiði er einnig lokuð en metið verður upp úr tíu hvort umferð verði beint um Tröllaskaga líkt og gert var um páskana. Á Siglufjarðarvegi er unnið að mokstri en hann er þungfær og á óvissustigi.

Ófært fyrir austan

Við Hófaskarð og Sandvíkurheiði er ágætisskyggni, að sögn Svans, og verið er því að moka þar. Mývatns- og Möðrudalsöræfi þau eru lokuð og verða fram á mánudag og einnig Vopnafjarðarheiðina. Á Möðrudalsöræfum þurfti að aðstoða minnst tvo bíla sem festust í óveðrinu.

Fagradal var lokað snemma í morgun og segir Svanur að ekki sé útlit fyrir að opnað verði þar í dag miðað við veðurspána. Vatnsskarð eystra er ófært og Fjarðarheiði líka og vinna þar mun bíða til mánudags.

Einnig er lokað á Skeiðarársandi og Öræfasveit en staðan verður metin aftur rétt undir hádegi.

Þjónusta almennt minni á sunnudögum

„Það fer allt eftir því hvort mælarnir sýni það hvort hægt sé að opna eitthvað fyrr,“ segir Svanur í samtali við fréttastofu.

„Það er sunnudagur. Það er misfarið varðandi þjónustu almennt á vegum. Það sem er verið að berjast við að gera er að halda þessum helstu leiðum opnum. Staðan er bara þannig að það er verið að vinna með aðstæður,“ segir Svanur.

Töluverð hætta snjóflóðum

Það er töluverð hætta á snjóflóðum af mannavöldum en hins vegar ekki sem gefur tilefni til þess að loka vegum. Við erum ekki að loka vegum vegna snjóflóðahættu.

„Við hvetjum vegfarendur og aðra sem þurfa að fara um svæðið þar sem snjóflóð geta fallið að sýna ýtrustu aðgæslu vegna þess að það eru veik lög í snjóþekjunni frá því áður. Þannig að þessi éljagangur sem spáð er í dag og hann gæti komið af stað snjóflóðum og þau þá orðið stærri en þetta veður akkúrat núna gefur tilefni til,“ segir Tómas Jóhannesson sérfræðingur í ofanflóðahættumati hjá Veðurstofu Íslands í samtali við fréttastofu.

„En annars er úrkoman rétt að byrja á Norðurlandinu þannig það hefur ekki skapast alvarleg snjóflóðahætta þar enn sem komið er.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×