Stór­skota­hríð Liverpool og ellefu mörk í tveimur leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cody Gakpo skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í kvöld og fagnar hér öðru þeirra.
Cody Gakpo skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í kvöld og fagnar hér öðru þeirra. Getty/James Gill

Liverpool vann þarna stærsta sigur sinn á leiktíðinni og einvígið 11-2 samanlagt.

Cody Gakpo skoraði tvö mörk í kvöld og Mohamed Salah var með eitt mark og þrjár stoðsendingar.

Liverpool var líka í frábærum málum eftir 5-1 sigur í fyrri leiknum og var auk þess komið í 4-0 eftir aðeins fjórtán mínútna leik.

Darwin Nunez skoraði fyrsta markið á 7. mínútu eftir sendingu frá Dominik Szoboszlai.

Bobby Clark skoraði annað markið mínútu síðar eftir að Liverpool menn pressuðu lið Tékkana grimmilega.

Mohamed Salah skoraði þriðja markið á 10. mínútu og Cody Gakpo það fjórða á 14. mínútu eftir stoðsendingu frá Salah.

Veljko Birmancevic minnkaði muninn á 42. mínútu og staðan var 4-1 í hálfleik.

Í síðari hálfleiknum skoraði Dominik Szoboszlai fimmta markið á 48. mínútu og Cody Gakpo það sjötta á 55. mínútu eftir að Harvey Elliott skaut í hann og inn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira