Frá­bær síðari hálf­leikur dugði Liver­pool

Leikmenn Liverpool fagna marki Cody Gakpo.
Leikmenn Liverpool fagna marki Cody Gakpo. Vísir/Getty

Liverpool er með fjögurra stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 4-1 sigur á Luton Town á heimavelli í kvöld. Toppliðið var undir í hálfleik en frábær síðari hálfleikur tryggði þeim stigin þrjú.

Mikið hefur verið rætt um meiðsli í leikmannahópi Liverpool að undanförnu en Mo Salah og Darwin Nunez voru ekki með liðinu í kvöld vegna meiðsla auk þess sem þeir Diogo Jota, Curtis Jones og markvörðurinn Alisson verða frá í einhvern tíma af sömu ástæðu.

Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti á Anfield í kvöld. Luis Diaz fékk tvö góð færi til að koma Liverpool í forystu en var klaufi að nýta þau ekki. Gestirnir nýttu hins vegar færi sem þeir fengu og Chiedozie Ogbene skoraði fyrsta mark leiksins með skalla eftir að boltinn féll til hans í teignum eftir markvörslu Caoimhin Kelleher.

Chiedozie Ogbene fagnar marki sínu.Vísir/Getty

Liverpool var ekki sannfærandi það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en mætti tvíeflt til leiks í þeim síðari. Á tveggja mínútna kafla sneru þeir leiknum við og komust í forystuna. Fyrst jafnaði fyrirliðinn Virgil Van Dijk með góðu skallamarki og Cody Gakpo kom Liverpool í forystu örskömmu síðar. Hollensk tvenna á ferð hjá toppliðinu.

Luis Diaz bætti síðan fyrir færin sem fóru forgörðum í fyrri hálfleik þegar hann skoraði mark af stuttu færi eftir sendingu frá Andy Robertson. Jurgen Klopp skipti ungum leikmönnum inn á undir lokin og þeir áttu sinn þátt í fjórða marki Liverpool sem Harvey Elliott skoraði.

Lokatölur í kvöld 4-1 og Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum. Liðið leikur ekki í ensku úrvalsdeildinni um helgina þar sem framundan er úrslitaleikur deildabikarsins gegn Chelsea.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira