Fótbolti

Sektaður um tvær milljónir fyrir samlokuummælin

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Chris Wilder þarf að opna veskið vegna ummæla sinna eftir leik Sheffield United og Crystal Palace.
Chris Wilder þarf að opna veskið vegna ummæla sinna eftir leik Sheffield United og Crystal Palace. James Gill - Danehouse/Getty Images

Chris Wilder, knattspyrnustjóri Sheffield United, hefur verið sektaður um 11.500 pund, rétt rúmlega tvær milljónir króna fyrir að saka dómara um hlutdrægni eða draga heiðarleika þeirra í efa.

Wilder var mjög ósáttur með ákvarðanir dómarans Tony Harrington í leik liðsins gegn Crystal Palac í janúar og sagði að frammistaða Harrington hafi verið út í hött. Hann talaði líka um það við fjölmiðla að dómarar væri líklegri til að dæma gegn félagi hans og að öll vafaatriði féllu gegn hans mönnum.

Wilder nefndi það líka að einn dómaranna í leiknum hafi sýnt sér virðingarleysi þegar hann fór að ræða málin eftir leikinn.

„Ég fór til dómarans og sagði honum mína skoðun. Einn af aðstoðarmönnum hans var að borða samloku og mér fannst hann með því sýna mér virðingarleysi. Vonandi naut hann samlokunnar á meðan hann var að tala við knattspyrnustjóra í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Wilder í viðtali eftir umræddan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×