Meistararnir töpuðu í Mílanó

Leikmenn Milan fagna marki Theo Hernandez.
Leikmenn Milan fagna marki Theo Hernandez. Vísir/Getty

Theo Hernandez var hetja AC Milan í stórleiknum gegn Napoli í kvöld. Hann skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Milan.

MIlan var í þriðja sæti deildarinnar fyrir leikinn og var fjórum stigum á eftir Juventus í öðru sæti. Meistarar Napoli voru hins vegar í 9. sæti en þeir hafa verið í erfiðleikum á þeirri vegferð að verja meistaratitilinn síðan í fyrra.

Eina mark leiksins í kvöld kom í fyrri hálfleik. Theo Hernandez fékk þá sendingu frá Rafael Leao og skoraði framhjá Pierluigi Gollini í marki Napoli.

Napoli reyndi hvað það gat til að jafna metin í lokin og áttu meðal annars skot í slá í uppbótartíma. Þeir kölluðu einnig eftir vítaspyrnu skömmu síðar en eftir skoðun í myndbandsdómgæslu var ekkert dæmt.

Lokatölur 1-0 og Milan fagnar þar með sætum sigri.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira