Lífið

Camilla Rut og Valli trú­lofuð

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Lífið virðist leika við Valla og Camillu.
Lífið virðist leika við Valla og Camillu. Camilla Rut

Camilla Rut Rúnarsdóttir, áhrifavaldur og athafnakona, og Valgeir Gunnlaugsson, pítsabakari og eigandi pizza 107, eru trúlofuð. Camilla greindi frá tímamótunum í story á Instagram.

„Það er enginn að hætta saman heldur bara öfugt,“segir Camilla og brosir, og sýnir gylltan hring á fingri sér:

„Hann er rosa sætur, þetta er gamli hringur ömmu hans Valla.“

Camilla og Valli fóru að stinga saman nefjum sumarið 2022, en höfðu þekkst nokkuð lengi fyrir það.

Parið flutti nýverið inn saman í fallegt parhús á Seltjarnarnesi, sem Valli átti áður en þau kynntust. Þau tóku húsið alfarið í gegn og gerðu að sínu. Camilla leyfði áhugasömum fylgjendum að fylgjast með frakvæmdunum á húsinu sem var nánast orðið fokhelt.  

„Við ákváðum að fara í allan pakkann og nostra við þetta,“ sagði Camilla í samtali við Vísi um ferlið.


Tengdar fréttir

Camilla Rut loggar sig út

Camilla Rut Rúnarsdóttir áhrifavaldur og athafnakona hefur ákveðið að taka sér frí frá samfélagsmiðlum og vera meira í núinu. Þeir hafi tekið of mikinn tíma frá henni.

Segir kærastann einstakan á alla vegu

Athafnafólkið og eitt hressasta par landsins, Valgeir Gunnlaugsson og Camilla Rut Rúnarsdóttir, betur þekkt sem Valli og Camy, eru í þann mund að hefja sambúð á framtíðarheimili þeirra á Seltjarnarnesi eftir miklar framkvæmdir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×