Real Madríd á toppinn með sigri á Kanarí­eyjum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Skoraði fyrra mark Real í dag.
Skoraði fyrra mark Real í dag. Getty Images/Yasser Bakhsh

Real Madríd lyfti sér á topp La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, með 2-1 sigri á Las Palmas í Kanaríeyjum.

Eftir markalausan fyrri hálfleik voru það heimamenn í Las Palmas sem komust yfir á 53. mínútu. Sú forysta entist í tólf mínútur en þá jafnaði hinn brasilíski Vinícius Junior eftir undirbúning Eduardo Camavinga.

Aurélien Tchouaméni skoraði svo sigurmarkið á 84. mínútu eftir sendingu Toni Kroos. Lokatölur á Kanaríeyjum 1-2 og Real Madríd komið upp fyrir Girona á topp deildarinnar. Þegar bæði lið hafa leikið 21 leik er Real með 54 stig en Girona með 52 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira