Menning

Hefur sýnt um allan heim en leitar nú í ís­lensku ræturnar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Listakonan Karen Ösp Pálsdóttir stendur fyrir sýningunni Á bláþræði.
Listakonan Karen Ösp Pálsdóttir stendur fyrir sýningunni Á bláþræði. Aðsend

Listakonan Karen Ösp Pálsdóttir hefur löngum verið búsett í Bandaríkjunum þar sem hún lagði stund á myndlist við listaháskóla í Maryland. Undanfarin ár hefur hún verið starfrækt í New York borg en var á dögunum að opna sýna fyrstu einkasýningu hér á Íslandi.

Gaman að sýna verkin í eigin persónu

Blaðamaður ræddi við Karen en sýningin ber heitið Á bláþræði og er staðsett í 1300° Gallery á Bergstaðastræti 4. Karen hefur unnið flest öll verk sýningarinnar á þessu ári og eiga þau það sameiginlegt að vera máluð einungis í kóbaltbláum tónum.

„Það var ótrúlega skemmtilegt að opna sýningu hér heima. Þar sem ég bý og starfa í New York hef ég ekki alltaf haft tækifæri til þess að sýna vinum mínum og fjölskyldu listaverkin mín svona í eigin persónu. Hingað til hafa ljósmyndir af verkunum oftast þurft að duga og því var þessi sýningaropnun alveg sérstakt tilefni fyrir okkur.“

Erfiðast að flytja verkin heim

Jólin eru einstakur tími fyrir Karen þar sem hún og fjölskylda hennar eru alltaf saman hér á Íslandi á þeim tíma árs.

„Því var líka skemmtilegt og hentugt að halda sýninguna hér um jólin.“

Þó hafi hún mætt ýmsum hindrunum við undirbúning sýningarinnar.

„Það erfiðasta við að halda sýningu í öðru landi var helst flutningur á verkum. Ég endaði á því að taka þau öll með mér í flug, pakkaði þeim bara vel í nokkrar töskur og flutningatúbur.

Ég þurfti svo að strekkja mörg verk upp á nýtt hérlendis fyrir opnunina. Ég kom líka ekki með nein auka verk og passaði að hafa nákvæman fjölda af verkum sem pössuðu í fallega rýmið í galleríinu.“

Karen fyrir utan sýningarrýmið í snjónum.Aðsend

Fyrsta sýning hérlendis í yfir áratug

Á Bláþræði er sem áður segir fyrsta einkasýning Karenar og sömuleiðis fyrsta sýning sem hún tekur þátt í hérlendis síðan 2013. Karen er alin upp í 101 Reykjavík og gekk í Austurbæjarskóla svo að hún á rætur að rekja í miðbæinn.

„Mér þótti mjög vænt um það að vera að sýna verkin mín í hverfinu sem ég ólst upp í. Opunin gekk vel og það var enn skemmtilegra að fá gesti til mín sem ég hef kannski ekki hitt rosalega lengi. 

Ég vonast til að halda fleiri sýningar hérna heima þar sem þetta hefur snúist mikið um samveru og það er svo gaman að hafa fólkið mitt hér að samgleðjast mér. Það er líka skemmtilegt hvað Íslendingar sýna listinni mikinn áhuga.“

Margt var um manninn á sýningaropnuninni.Aðsend

Fjölbreyttari sena úti

Aðspurð hvort hún finni mun á listasenunni hérlendis og úti í New York segir Karen:

„Ég myndi segja að úti sé kannski aðeins fjölbreyttari sena enda mikið stærra land og það er auðvitað rosalega fjölmennt og fjölbreytt mannflóra í New York. En á Íslandi er ég að upplifa mikinn stuðning og maður upplifir sig meira sem hluta af samfélagi.“

Karen Ösp segist ótrúlega þakklát fyrir stuðning frá fólkinu sínu. Henni finnst gaman að sjá hve mikinn áhuga Íslendingar hafa almennt á list. Aðsend

Þrátt fyrir að þetta sé hennar fyrsta einkasýning hefur Karen sýnt málverk sín víða um heiminn. Má þar nefna gallerí í New York, Baltimore, Washington DC, London, Barcelona, Reykjavík og Annecy. Einnig hafa málverk Karenar verið birt í ótal bókum og tímaritum meðal annars New American Paintings, Create! Magazine, Tibia Magazine, SFMOMA, Hyperallergic og El País.

Meðal verka Karenar en kópaltbláu tónarnir ráða ríkjum. Aðsend
Karen ferðaðist með öll verk sín með sér í flugi frá New York.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×