Innlent

Fyrir­vari á nýjum sprungum geti verið mjög stuttur

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Þunginn í virkni gossins er norðanlega sem stendur.
Þunginn í virkni gossins er norðanlega sem stendur. Vísir/Einar

Veðurstofan hefur gefið út nýtt hættumatskort byggt á túlkun nýjustu gagna og út frá stöðu virkninnar í eldgosinu við Sundhnúksgíga. Hætta hefur aukist umtalsvert á öllum svæðum sem skilgreind voru á eldra hættumatskorti. Áfram eru taldar líkur á frekari gosopnunum.

Áfam dregur úr krafti gossins. Á nýjum yfirlitsmyndum af svæðinu sést að nú gýs úr þremur gosopum suðaustur af Stóra-Skógfelli, en gosopin voru áður fimm. Hraun hefur að mestu flætt í austur út frá eldstöðvunum, en einnig er hrauntunga að teygja sig í vestur fyrir norðan Stóra-Skógfell. Þetta kemur fram í nýrri uppfærslu á vef Veðurstofunnar.

Nýtt hætumatskort Veðurstofunnar.Veðurstofan

Þar segir einnig að frá því að gosið hófst hafi um 320 skjálftar mælst yfir kvikugangingum. Stærsti skjálftinn mældist 4.1 að stærð klukkan 23:25. Eftir miðnætti hefur dregið töluvert úr skjálftavirkni og frá því klukkan 12 í dag hafa aðeins 10 skjálftar mælst.

Fyrirvari á nýjum sprungum geti verið mjög stuttur

Land hefur sigið um 70 sentimetra í Svartsengi í kjölfar gossins. Áður hafði land risið þar um 35 sentimetra frá því að kvikugangurinn myndaðist 10. nóvember.

„Of snemmt er að segja til um hvort kvika haldi svo áfram að safnast undir Svartsengi og land taki að rísa að nýju,“ segir í tilkynningunni.

Á meðan áfram gýs við Sundhnúksgíga eru taldar auknar líkur á frekari gosopnunum, á upphaflegu sprungunni sem og lengra til norðurs eða suðurs.

„Ef horft er til aðdraganda gossins, þá liðu um 90 mínútur frá því að fyrstu merki sáust og þangað til að gos hófst. Miðað við upphaf gossins við Sundhnúk getur fyrirvari á nýjum opnunum því verið mjög stuttur.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×