Sport

Dag­skráin í dag: Allar mögu­legar bolta­í­þróttir

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Álftanes hefur spilað frábærlega það sem af er tímabili.
Álftanes hefur spilað frábærlega það sem af er tímabili. Vísir/Anton Brink

Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2. Við bjóðum upp á handbolta, körfubolta, fótbolta, pílu og íshokkí.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.00 hefst stórleikur í Garðabæ þegar Stjarnan og Álftanes mætast í Subway-deild karla í körfubolta.

Klukkan 21.20 er Körfuboltakvöld á dagskrá en þar verður farið yfir síðustu umferð Subway-deildar karla.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 19.35 er leikur Monza og Juventus í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu, á dagskrá.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 19.35 er komið að leik York og Wigan Atletic í þeirri elstu og virtustu, ensku bikarkeppninni í knattspyrnu.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 21 er Úrvalsdeildin í pílukasti á dagskrá þar sem úrslitin ráðast en aðeins fjórir keppendur standa eftir.

Vodafone Sport

Klukkan 18.55 hefst útsending frá Flensburg þar sem heimamenn taka á móti Íslendingaliði Melsungen í þýsku úrvalsdeild karla í handbolta.

Klukkan 00.05 er leikur New Jersey Devils og San Jose Sharks í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×