Tíska og hönnun

Segir fötin geta stýrt því hvernig aðrir upp­lifi sig

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sól Hansdóttir fer einstakar leiðir í fatahönnun sinni. Hún er viðmælandi í Kúnst.
Sól Hansdóttir fer einstakar leiðir í fatahönnun sinni. Hún er viðmælandi í Kúnst. Vísir/Vilhelm

„Það hefur alltaf verið mjög mikilvægt fyrir mér að hafa stjórn á því í hverju ég er,“ segir fatahönnuðurinn Sól Hansdóttir. Hún er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Hér má sjá viðtalið við Sól í heild sinni:

„Það hefur alltaf verið öryggi í því að geta stjórnað klæðaburðinum sjálf. Mér finnst ég bæði hafa stjórn á því hvernig mér líður og hvernig aðrir upplifa mig. Það er kraftmikið skref og þetta hefur verið svona hjá mér svo lengi sem ég man eftir mér,“ segir Sól. Fyrir henni er mikilvægt að geta stýrt eigin ímynd og ræðir meðal annars um kynjaðar og kyngerðar staðalímyndir. Því finnst henni öflugt frelsi í því að geta tjáð sig með flíkunum sínum. 

„Mamma hætti að reyna að klæða mig í hluti sem hún vildi að ég klæddist þegar ég var fjögurra ára, því það var bara ekki hægt að stjórna því hjá mér. 

Ég var að setja saman eitthvað fáránlegt segir hún en ég þori að veðja að það var ekkert fáránlegt, það meikaði örugglega sens fyrir mér.“

Þessi tjáningarþörf Sólar átti heldur betur eftir að þróast. Í kringum fermingu fékk hún sína fyrstu saumavél og þá var ekki aftur snúið. Hún kláraði BA gráðu í fatahönnun við Listaháskóla Íslands og fór svo út til London í starfsnám. Í kjölfarið komst hún inn í hinn virta háskóla Central Saint Martins þar sem hún lauk við meistaranám og hélt svo áfram að þróa sína eigin hönnun. 


Tengdar fréttir

Hannar hátískuflíkur úr ull fjölskyldusveitarinnar

Fatahönnuðurinn Sól Hansdóttir var ung að árum harðákveðin í því hvernig hún vildi klæða sig og hefur alla tíð verið óhrædd við að fara eigin leiðir. Sól hefur verið með annan fótinn í London síðustu ár og stefnir á erlendan markað með hönnun sína en hún er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

„Ég er ekkert að slæpast“

„Ég er algjör fréttafíkill, ég hlusta á hvern einasta fréttatíma,“ segir hin 90 ára Ragnheiður Jónsdóttir, grafíker og kolamálari, sem stendur fyrir sýningunni Kosmos/Kaos á Listasafni Árnesinga. Ragnheiður er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Konurnar voru bara eins og eitt af húsgögnunum

„Ég hef gert myndirnar fyrst og haft áhyggjurnar á eftir. Þegar ég opnaði mína fyrstu sýningu árið 1976 hafði ég áhyggjur af því að ég yrði bara rökkuð niður,“ segir grafíkerinn og kolateiknarinn Ragnheiður Jónsdóttir, sem er gagnrýnin og óhrædd við að segja sína skoðun í listsköpun sinni. Ragnheiður er viðmælandi í Kúnst.

Vildi klæðast ruslinu sínu

„Ég myndi segja að leikgleði einkenni listsköpun mína og hún er mjög litrík og umhverfisvæn,“ segir vöruhönnuðurinn og plötusnúðurinn Rebekka Ashley, sem finnur notagildi í nánast öllu í kringum sig og fer vistvænar leiðir í sinni listsköpun. Rebekka Ashley er viðmælandi í Kúnst.

Hlær bara að hrútskýringum

Fjöllistakonan Guðlaug Sóley, jafnan þekkt sem Gugusar, hefur náð miklum árangri sem tónlistarkona á undanförnum árum og meðal annars unnið til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Hún byrjaði fimmtán ára gömul að semja tónlist og pródúsera sjálf en takmarkar sig ekki við einn listmiðil. Gugusar er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 

Flugu saman fram af hárugri bjarg­brún

„Okkur fannst bara mjög spennandi að vinna saman og við vissum strax að við ætluðum að vera með óvanalega sýningu. Maður finnur ákveðið traust til að hleypa einhverjum svona inn í sinn heim,“ segja Hrafnhildur Arnardóttir, jafnan þekkt sem Shoplifter, og Hrafnkell Sigurðsson, myndlistarmaður ársins 2022. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×