Fótbolti

Svona var fundurinn þegar Þor­steinn kynnti landsliðshópinn sinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Frá leik íslensku stelpnanna á móti Þýskalandi í Þjóðadeildinni.
Frá leik íslensku stelpnanna á móti Þýskalandi í Þjóðadeildinni. Vísir/Hulda Margrét

Þorsteinn Halldórsson tilkynnti í dag hópinn sinn fyrir lokaleiki kvennalandsliðsins í Þjóðadeildinni. Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundinum og nú er hægt að horfa á hann aftur hér á Vísi.

Þorsteinn gerði þrjár breytingar á landsliðshópnum sínum frá síðasta verkefni og skipti meðal annars um tvo af þremur markvörðum sínum. Framherjinn öflugi Sveindís Jane Jónsdóttir er enn frá vegna meiðsla en Þorsteinn kallar aftur á móti á Ólöfu Sigríði Kristinsdóttur sem stundar nám í Harvard.

Ísland mætir Wales 1. desember og Danmörku 5. desember í síðustu tveimur leikjum sínum í Þjóðadeildinni. Báðir leikirnir fara fram ytra.

Ísland er í 3. sæti riðils 3 með þrjú stig. Endi liðið þar fer það í umspil um að halda sæti sínu í A-deild Þjóðadeildarinnar.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig fundur Þorsteins gekk fyrir sig í höfuðstöðvum KSÍ í dag.

Klippa: Blaðamannafundur KSÍ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×