Fótbolti

Sæ­dís Rún byrjar í fyrsta sinn í A-lands­liðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Byrjunarlið Íslands í kvöld. Sædís Rún er númer 19.
Byrjunarlið Íslands í kvöld. Sædís Rún er númer 19. Vísir/Hulda Margrét

Stjörnukonan Sædís Rún Heiðarsdóttir er í byrjunarliði Íslands á móti Danmörku í Þjóðadeild kvenna á Laugardalsvellinum í kvöld.

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá því tapinu slæma á móti Þýskalandi í síðasta mánuði.

Ingibjörg Sigurðardóttir og Berglind Rós Ágústsdóttir missa sæti sitt í liðinu en Ingibjörg tekur út leikbann í leiknum. Í stað þeirra koma inn í liðið þær Sædís Rún og Agla María Albertsdóttir.

Báðar komu þær Sædís Rún og Agla María inn á sem varamenn í 4-0 tapinu á móti Þýskalandi.  Það var fyrsti landsleikur Sædísar sem er aðeins nítján ára  en hún er fyrirliði íslenska nítján ára landsliðsins.

Átta leikmenn hafa því byrjað alla þrjá leiki Íslands í keppninni en það eru þær Telma Ívarsdóttir, Sandra María Jessen, Glódís Perla Viggósdóttir, Selma Sól Magnúsdóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Hlín Eiríksdóttir, Hildur Antonsdóttir og Guðrún Arnardóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×