Kona í haldi lögreglu vegna andláts karlmanns Helena Rós Sturludóttir skrifar 25. september 2023 10:34 Konan var handtekin á vettvangi en maðurinn fannst látinn í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni um helgina. Vísir/Vilhelm Kona um fertugt var í gær úrskurðuð í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur til 27. september á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Konan var handtekin á vettvangi þar sem maður á sextugsaldri fannst meðvitundarlaus í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni á laugardag, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglu barst tilkynning um málið á laugardagskvöld og þegar hún kom á staðinn hóf hún þegar í stað endurlífgunartilraunir á manninum. Hann var í framhaldinu fluttur á Landspítalann en var úrskurðaður látinn við komuna. Í tilkynningu lögreglu kemur fram að ekki verði veittar frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir konuna í haldi vegna rannsóknarhagsmuna og nú sé beðið eftir niðurstöðum rannsókna líkt og krufningu til að fá betri mynd á málið. Bæði séu Íslendingar. Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið. Fréttin hefur verið uppfærð. Mannslát til rannsóknar í Bátavogi Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Óvissa uppi um „stóra og fallega“ frumvarpið og Musk hótar hefndum Erlent Stjórnarformaðurinn segir stund sannleikans runna upp fyrir Eurovision Innlent „Þetta er ekkert líf“ Innlent Læknanemar látnir borga hagræðingarbrúsann Innlent Skipt um lás hjá Sósíalistaflokknum Innlent Ragna yfirgefur Alþingi mánuði fyrr en áætlað var Innlent Mikill minnihluti telur stjórnarandstöðuna standa sig vel Innlent Nemendur greiði tuttugu þúsund krónum meira í Strætó en starfsfólk Innlent Rauðar viðvaranir víða í Evrópu vegna hitans Erlent Óeirðir í Tyrklandi vegna umdeildrar skopmyndar Erlent Fleiri fréttir „Þetta er komið út fyrir öll mörk“ „Held að þau átti sig ekki á því hvað þetta skiptir okkur miklu máli“ Læknanemar fái víst launahækkun Prófessor segir málþófið komið út fyrir öll mörk Slitlag lagt að fossinum Dynjanda í næsta mánuði Ragna yfirgefur Alþingi mánuði fyrr en áætlað var Mikill minnihluti telur stjórnarandstöðuna standa sig vel Stjórnarformaðurinn segir stund sannleikans runna upp fyrir Eurovision Ræddu veiðigjaldið til hálf þrjú í nótt Foreldrar fjölbura fá lengra fæðingarorlof Læknanemar látnir borga hagræðingarbrúsann Náðu með markaðsátaki að lokka til sín fleiri smærri leiðangursskip Skipt um lás hjá Sósíalistaflokknum Nemendur greiði tuttugu þúsund krónum meira í Strætó en starfsfólk Sanna og Gunnar Smári höfðu betur á æsingarfundi Annað útkall vegna strandveiðibáts úti fyrir Patreksfirði „Þetta er ekkert líf“ Umræða um veiðigjöldin orðin sú þriðja lengsta Óprúttinn aðili rispaði tíu bíla á Seltjarnarnesi Fylkingarnar safna liði og ásakanir ganga á víxl: Stefnir í átök í Bolholti Líf í biðstöðu og hitafundur sósíalista Strandveiðisjómaður lést Deila um Suðurnesjalínu 2 fer beint í Hæstarétt Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Sjá meira
Konan var handtekin á vettvangi þar sem maður á sextugsaldri fannst meðvitundarlaus í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni á laugardag, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglu barst tilkynning um málið á laugardagskvöld og þegar hún kom á staðinn hóf hún þegar í stað endurlífgunartilraunir á manninum. Hann var í framhaldinu fluttur á Landspítalann en var úrskurðaður látinn við komuna. Í tilkynningu lögreglu kemur fram að ekki verði veittar frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir konuna í haldi vegna rannsóknarhagsmuna og nú sé beðið eftir niðurstöðum rannsókna líkt og krufningu til að fá betri mynd á málið. Bæði séu Íslendingar. Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið. Fréttin hefur verið uppfærð.
Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.