Barcelona með þriðja sigurinn í röð

Siggeir Ævarsson skrifar
Lewandowski og Ferran Torres fagna marki þess fyrrnefnda
Lewandowski og Ferran Torres fagna marki þess fyrrnefnda Twitter@FCBarcelona

Börsungar virðast vera óðum að ná vopnum sínum í spænsku úrvalsdeildinni en liðið vann sinn þriðja sigur í röð í kvöld þegar það lagði Osasuna á útivelli.

Í fremur tíðindalitlum fyrri hálfleik dró loks til tíðinda í uppbótartíma þegar Jules Koundé kom gestunum frá Barcelona yfir 0-1. Börsungar voru töluvert meira með boltann í leiknum en gekk lítið að skapa sér afgerandi færi.

Chimy Avila jafnaði leikinn með marki á 76. mínútu en á 84. mínútu fékk Alejandro Catena að líta rauða spjaldið og Barcelona fengu vítaspyrnu. Robert Lewandowski afgreiddi spyrnuna í netið og Barcelona sluppu með þrjú stig úr þessum slag.

Fyrr í dag átti leikur Atletico Madrid og Sevilla að fara fram en honum var frestað vegna úrhellis í Madríd, en borgaryfirvöld beindu þeim tilmælum til fólks að halda sig heima í dag vegna veðurs.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira