Segja Gylfa vera kominn til Danmerkur Smári Jökull Jónsson skrifar 23. ágúst 2023 20:52 Gylfi Sigurðsson á leik Íslands og ítalíu á EM kvenna á Englandi í Manchester Gylfi Þór Sigurðsson Gylfi Sigurðsson flaug til Danmerkur í morgun samkvæmt heimildum Fótbolti.net. Gylfi hefur verið orðaður við Lyngby síðustu vikur og gæti verið að færast nær því að semja við félagið.
Gylfi Sigurðsson hefur ekki leikið knattspyrnu síðan hann var sakaður um kynferðisbrot sumarið 2021. Málið var í rannsókn hjá lögreglunni í Bretlandi. Í apríl síðastliðnum lýsti lögreglan í Manchester því hins vegar yfir að sönnunargögn „næðu ekki þeim þröskuldi sem fellur að reglum saksóknara krúnunnar“, og var Gylfi þar með laus allra mála. Í júlímánuði mætti Gylfi á æfingar hjá Val en lítið hefur frést um næstu skref hans og sjálfur hefur hann ekkert gefið út um hvort hann ætli að halda áfram að spila knattspyrnu. Síðustu vikur hefur orðrómurinn um að Gylfi sé á leið til Lyngby orðið æ háværari. Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby og hann sagði í viðtali á dögunum að hann teldi helmingslíkur á því að Gylfi gengi til liðs við félagið. „Ég myndi segja að líkurnar væru 50/50,“ sagði Freyr sem vildi ekki fara nánar út í viðræðurnar. „Ég get ekki farið í nein smáatriði en við höfum sett saman plan og ef það gengur upp er raunhæft að Gylfi Þór verði leikmaður Lyngby,“ sagði Freyr þá. Ljóst er að það myndi vekja mikla athygli ef Gylfi gengi til liðs við Lyngby. Sævar Atli Magnússon, Kolbeinn Finnsson og Andri Lucas Guðjohnsen leika með félaginu.
Danski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira