Fótbolti

Fékk ekki fyrir­liða­bandið og fór í fýlu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Karim Benzema er ósáttur hjá Al-Ittihad.
Karim Benzema er ósáttur hjá Al-Ittihad. Vísir/Getty

Karim Benzema gekk til liðs við sádíarabíska félagið Al-Ittihad í byrjun júní. Hann virtist þá hinn ánægðasti en nú virðist vera komið annað hljóð í strokkinn.

Karim Benzema er ein af allra stærstu stjörnunum sem hefur fært sig til Sádi Arabíu á síðustu mánuðum en hann gekk til liðs við Al-Ittihad í sumar frá Real Madrid. Hann skoraði 354 mörk í 648 leikjum fyrir Real Madrid og er næstmarkahæsti leikmaður félagsins í sögunni. Aðeins Cristiano Ronaldo hefur skorað meira.

Benzema hefur verið í byrjunarliði Al-Ittihad í tveimur fyrstu leikjum liðsins á tímabilinu. Leikirnir hafa báðir unnist en Benzema þó ekki náð að skora.

Samkvæmt fjölmiðlinum Asharq Al-Aswat, sem staðsettur er í London, er samband Benzema og þjálfarans Nuno Espirito Santo alls ekki gott. Samkvæmt fjölmiðlinum á Santo að hafa sagt yfirmönnum félagsins að Benzema passi ekki í leikkerfi hans. Santo hefur meðal annars stýrt Tottenham, Wolves og Porto á sínum ferli.

Nuno Espirito Santo og Karim Benzema virðast vera komnir í hár saman.Vísir/Getty

Þá á Benzema sjálfur að hafa lýst yfir óánægju með að hann hafi fengið ófaglega meðferð af hálfu þjálfarans. Benzema var neitað um fyrirliðaband Al-Ittihad þegar hann óskaði eftir því við komuna til félagsins. Brasilíumaðurinn Romarinho var skipaður fyrirliði, Benzema til mikillar gremju.

Samkvæmt Asharq Al-Aswat er gjáin á milli Benzema og Santo orðin svo djúp að Frakkinn tók ekki þátt í síðustu æfingu liðsins. Þá fylgir sögunni að Benzema íhugi að yfirgefa félagið ef Santo verður áfram knattspyrnustjóri. Ólíklegt verður þó að teljast að félagið velji Santo fram yfir Benzema sem vann Ballon D´or árið 2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×