Íslenski boltinn

Hafa tekið stig í fjórum af fimm leikjum á móti bestu liðunum en eru samt neðstir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Keflvíkingar hafa tekið stig út úr báðum leikjum sínum á móti Val og það eru fjögur dýrmæt stig sem Valsmenn hafa tapað í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.
Keflvíkingar hafa tekið stig út úr báðum leikjum sínum á móti Val og það eru fjögur dýrmæt stig sem Valsmenn hafa tapað í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Vísir/Diego

Keflvíkingar eru enn í slæmum málum á botni Bestu deildar karla í fótbolta en þeir voru samt hársbreidd frá sigri á Valsmönnum í gær.

Keflavíkurliðið er með ellefu stig eftir nítján leiki og sex stigum frá öruggu sæti. Liðið gerði áttunda jafnteflið sitt í gær og hefur ekki unnið leik frá því liðið vann sigur í fyrstu umferðinni 10. apríl.

Keflavík komst yfir á móti Val í gær þegar komið var fram á fimmtu mínútu í uppbótatíma en Valsmenn náðu að jafna áður en leikurinn var flautaður af.

Þrátt fyrir að vera langneðstir í deildinni þá hafa Keflvíkingar verið að gera betri hluti á móti efstu liðunum en flest önnur félög.

Þetta var fjórði leikurinn sem Keflavík tekur stig á móti Víkingi, Val eða Breiðabliki. Keflavík hefur spilað fimm leiki samtals á móti toppliðunum.

Keflavík tapaði fyrsta leiknum á móti Víkingi en hefur síðan fengið stig út úr fjórum leikjum í röð á móti efstu þremur liðum deildarinnar.

Í tveimur síðustu, á móti liðinu í fyrsta (Víkingur) og öðru (Val) sæti þá hafa toppliðin sloppið með eitt stig eftir að hafa jafnað metin í uppbótatíma.

Toppliðin Víkingur, Valur og Breiðablik hafa tapað stigum í samtals átján leikjum í sumar (10 jafntefli og 8 töp) en 22 prósent þeirra hafa verið á móti botnliðinu.

Það gerir þá staðreynd enn skrýtnari að Keflvíkingar skulu sitja langneðstir á botni Bestu deildarinnar.

  • Leikir Keflavíkurliðsins á móti þremur efstu liðunum í Bestu deildinni í sumar:
  • 4. maí: 1-4 tap fyrir Víkingi
  • 21. maí: 0-0 jafntefli við Val
  • 29. maí: 0-0 jafntefli við Breiðablik
  • 8. júlí: 3-3 jafntefli við Víking (Víkingur jafnaði í uppbótatíma)
  • 13. ágúst: 1-1 jafntefli við Val (Valur jafnaði í uppbótatíma)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×