Íslenski boltinn

Kjóstu leikmann mánaðarins í Bestu deild karla

Sindri Sverrisson skrifar
Þessir fimm eru tilnefndir sem leikmaður mánaðarins í júlí, í Bestu deild karla í fótbolta.
Þessir fimm eru tilnefndir sem leikmaður mánaðarins í júlí, í Bestu deild karla í fótbolta. Stöð 2 Sport

Tveir Víkingar, tveir Stjörnumenn og einn Valsari eru tilnefndir í kjörinu á besta leikmanni júlímánaðar í Bestu deild karla í fótbolta. Tilkynnt var um tilnefningarnar í Stúkunni á Stöð 2 Sport í gær.

Það er núna í höndum lesenda Vísis að kjósa um það hver skaraði fram úr í júlí og er hægt að greiða atkvæði hér neðst í greininni.

Klippa: Stúkan - Leikmaður júlí í Bestu deild karla

Hinir tilnefndur eru Stjörnumennirnir Eggert Aron Guðmundsson og Emil Atlason, Víkingarnir Matthías Vilhjálmsson og Gunnar Vatnhamar, og Valsarinn Tryggvi Hrafn Haraldsson.

Besti leikmaður júní var valinn Birnir Snær Ingason úr Víkingi. Valsarinn Adam Ægir Pálsson skaraði fram úr í maí og HK-ingurinn Örvar Eggertsson í apríl.

Kosningin fyrir júlí fer fram hér að neðan og verða úrslitin svo tilkynnt í Stúkunni á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×