Enski boltinn

Sjáðu Diaz skora fyrir Liver­pool með há­lofta­hæl­spyrnu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luis Diaz fagnar marki sínu með liðsfélaa sínum Cody Gakpo.
Luis Diaz fagnar marki sínu með liðsfélaa sínum Cody Gakpo. Getty/Alex Livesey

Luis Díaz skoraði síðasta mark Liverpool á undirbúningstímabilinu með sérstökum hætti þegar Liverpool liðð vann 3-1 sigur á þýska liðinu Darmstadt 98 í gær.

Enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi þar sem Liverpool sækir Chelsea heim á Stamford Bridge.

Liverpool hefur raðað inn mörkum á undirbúningstímabilinu en fengið líka mörg mörk á sig líka.

Mohamed Salah og Diogo Jota skoruðu tvö fyrstu mörk Liverpool í gær áður en Þjóðverjarnir minnkuðu muninn.

Þriðja markið kom síðan í seinni hálfleiknum. Nýi maðurinn Dominik Szoboszlai átti þá hornspyrnu á nærstöngina þar sem Luis Díaz losaði sig frá varnarmanni og skoraði með laglegri háloftahælspyrnu eins og sjá má hér fyrir neðan.

Díaz skoraði þrjú mörk á undirbúningstímabilinu þar af mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins.

Miklar væntingar eru bundnar við Díaz sem missti af stórum hluta síðasta tímabils vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×