Fótbolti

Kim Kardashian blandar sér í umræðuna hvort Messi eða Ronaldo sé betri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kim Kardashian og fleiri stjörnur sáu Inter Miami vinna dramatískan sigur á Cruz Azul í Leagues Cup á föstudaginn.
Kim Kardashian og fleiri stjörnur sáu Inter Miami vinna dramatískan sigur á Cruz Azul í Leagues Cup á föstudaginn. getty/Mike Ehrmann

Kim Kardashian hefur blandað sér í umræðuna um hvor sé betri, Lionel Messi og Cristiano Ronaldo.

Sonur Kardashians er mikill fótboltaáhugamaður og þau hafa sést saman á mörgum leikjum að undanförnu. Þau sáu meðal annars Messi skora sitt fyrsta mark fyrir Inter Miami með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu á föstudaginn.

Í gær fylgdist Kardashian svo með æfingaleik Paris Saint-Germain og Al Nassr sem Ronaldo leikur með.

YouTube-stjarnan Speed, sem er mikill aðdáandi Ronaldos, var einnig á leiknum í Osaka í Japan og hann spurði Kardashian-mæðginin hvor væri betri, Messi eða Ronaldo. Sonurinn valdi Ronaldo áður en mamman var spurð.

„Báðir. Við skemmtum okkur konunglega á leiknum. Ég er hrifinn af báðum,“ sagði raunveruleikastjarnan og athafnakonan.

Al Nassr gerði markalaust jafntefli við PSG í leiknum umrædda. Ronaldo spilaði fyrstu 66 mínútur leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×