Fótbolti

Kristall semur við Sönderjyske til þriggja ára

Smári Jökull Jónsson skrifar
Kristall Máni Ingason er nýr leikmaður Sönderjyske í Danmörku.
Kristall Máni Ingason er nýr leikmaður Sönderjyske í Danmörku. Sönderjyske

Kristall Máni Ingason er genginn til liðs við danska félagið Sönderjysk frá Rosenborg í Noregi. Danska félagið staðfesti félagaskiptin á samfélagsmiðlum sínum nú fyrir skömmu.

Fréttir af mögulegum félagaskiptum Kristals Mána til Danmerkur bárust í gær en í fyrstu var talið að um lánssamning yrði að ræða. Kristall Máni gekk til liðs við Rosenborg síðasta sumar og hefur því aðeins verið hjá Rosenborg í rúmt ár.

Kristall Máni hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar í Þrándheimi. Hann komst í fréttirnar í vor eftir að hafa viðurkennt leikaraskap í leik og var skammaður af forráðamönnum félagsins í kjölfarið. Síðustu vikurnar hefur hann fengið fáar mínútur en gengi Rosenborg á tímabilinu hefur verið arfaslakt. Liðið vann þó sigur á Tromsö á sunnudag en Kristall kom ekki við sögu í leiknum.

Nú hefur danska félagið staðfest að Kristall sé búinn að skrifa undir samning við félagið en samningurinn er til þriggja ára. Danski leikmaðurinn Emil Fredriksen fer í hina áttina, frá Danmörku til Noregs, en það er hluti samkomulagsins liðanna á milli.

Hjá Sönderjyske er fyrir Atli Barkarson en þeir léku einnig saman hjá Víkingum. Einnig spilar landsliðsmiðvörðurinn Daníel Leó Grétarsson með danska liðinu sem spilar í næstefstu deild í Danmörku.

„Gefur sóknarleiknum okkar nýja vídd“

Forráðamenn Sönderjyske eru spenntir fyrir komu Kristals Mána.

„Kristall Máni Ingason er með mikla hæfileika og hefur komið við sögu hjá stórum félögum á sínum ferli. Það er erfitt fyrir ungan leikmann að spila nægilega mikið hjá félögum eins og FC Kaupmannahöfn og Rosenborg. Þess vegna erum við sannfærðir um að hjá Sönderjyske geti hann tekið næsta skref á ferlinum,“ segir yfirmaður íþróttamála hjá Sönderjyske, Esben Hansen, í viðtali á heimasíðu félagsins.

„Í honum fáum við leikmann sem getur spilað margar stöður framarlega á vellinum. Hann gefur okkar sterkur sóknarlínu nýja vídd. Þrátt fyrir utan aldur hefur hann reynslu og meðal annars spilað fjóra A-landsleiki. Við hlökkum til að hans hæfileikar blómstri enn frekar hjá okkur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×