Tíska og hönnun

Kjóla­tískan í brúð­kaupum sumarsins

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Bleikur litur virðist heitur í brúðkaupum sumarsins.
Bleikur litur virðist heitur í brúðkaupum sumarsins.

Brúðkaupstímabilið stendur sem hæst um þessar mundir. Fjöldi fallegra mynda af brúðhjónum og gestum hafa verið áberandi liðnar vikur á samfélagsmiðlum. Kjólaval fyrir veisluhöldin getur reynst vandasamt.

Miðað við myndir síðustu vikna er bleikur vinsæll litur hjá kvenkyns brúðargestum í sumar. Þó er grænir, gylltir og blómamynstraðir kjólar einnig koma sterkir inn.

Skærbleikur og flottur

Viktoría Hermannsdóttir fjölmiðlakona klæddist skærbleikum síðermakjól í brúðkaupi Eddu Sifjar Guðbrandsdóttur og Steindórs Inga Snorrasonar. Myndin er tekin úr veislunni sem var hin glæsilegasta á Hótel Borg. 

Bleikar pallíettur

Erna Hrund Hermannsdóttir, förðunarfræðingur og vörumerkjastjóri, klæddist fagurbleikum pallíettukjól í brúðkaupi Karitasar Maríu Lárusdóttur þjálfara og Gylfa Einarssonar, fyrrverandi knattspyrnumanns.

Umrætt brúðkaup var haldið á La Finca Resort hótelinu á Spáni.

Bleikur og appelsínugulur

Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir, fitnessdrottning og einkaþjálfari, þekkt sem Heiða Óla, var í fagurbleikum kjól með pífum kvöldið fyrir brúðkaupið hjá Karitas Maríu og Gylfa.  

Í brúðkaupinu sjálfu klæddist hún svo appelsínugulum síðermakjól. Í myndafærslunni Heiðu hér að neðan má sjá vinkonur hennar sem klæddust ýmist grænum, kampavínslituðum eða bleikum kjólum.

Gylltur fjaðrakjóll

Kristbjörg Jónasdóttir athafnakona klæddist gylltum fjaðrakjól í ofangreindu brúðkaupi. Töff og öðruvísi.

Bleikfjólublá litablanda

Mari Järsk afrekshlaupakona birti mynd af sér og kærastanum, Nirði Lúðvíkssyni, verk­efna­stjóra hjá Öss­uri, í brúðkaupi sem haldið var á Hótel Geysi í júní. Kjóllinn sem Mari klæddist var í bleikfjólubláu mynstri með einni ermi. Nýtískulegur og smart.

Hannaði brúðarkjól vinkonu sinnar

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir, eigandi verslunarinnar Andrea by Andrea, klæddist fallegum kampavínslituðum, ermalausum síðkjól í brúðkaupi á Ítalíu á dögunum. Við kjólinn var hún í smart skærgrænum hælaskóm og hvítum jakka.

Andrea þykir með eindæmum smart. Hún hannaði til að mynda brúðarkjól brúðarinnar, Berglindar Arnardóttur, í umræddu brúðkaupi.

Fjólablátt flauel

Eva Ruza Miljevic, grínisti og skemmtikraftur, veislustýrði brúðkaupi Örnu Ýrar Jónsdóttur fegurðardrottningar og Vignis Þórs Bollasonar kírópraktors um liðna helgi.  Eva klæddist stuttum, fjólumbláum síðermakjól úr flauelsefni.  

Barbie-bleikur

Tanja Ýr Ástþórsdóttir, athafnakona og fyrrverandi fegurðardrottning, klæddist ljósbleikum síðkjól með bundna hlíra og opinn í bakið, í brúðkaupi Örnu Ýrar og Vignis Þórs liðna helgi.

Ljósbleikur og stuttur

Lína Birgitta Sigurðardóttir athafnakona var gestur í sama brúðkaupi og mætti í ljósbleikum stuttum kjól. 

Stuttur og síðerma

Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Ína María Einarsdóttir fagnaði ástinni í Eyjafjarðarsveit á dögunum. Ína mætti í sumarlegum og mynstruðum síðerma kjól grænum og hvítum á lit. 

Kremaður blómakjóll

Tara Sif Birgisdóttir, fasteignasali og dansari, klæddist kremuðum blómakjól um liðna helgi í brúðkaupi vinkonu sinnar, Svövu Guðrúnar Helgadóttur, og Hákons Hallfreðssonar. Brúðkaupið var haldið í Kjós í Hvalfirði í dásamlegu veðri líkt og sjá má í myndafærslu Töru.

Límónugrænn silkikjóll með axlapúðum

Fanney Ingvarsdóttir, samfélagsmiðlafulltrúi Bioeffect, birti myndir úr sama brúðkaupi sem virtist hið glæsilegsta. 

Fanney klæddist stuttum silkikjól í límónugrænum lit frá merkinu The Garment og fæst meðal annars í versluninni Andrá.

Sægrænn og sumarlegur

Eva Laufey Kjaran fagnaði ástinni hjá vinafólki í London á dögunum. Í veislunni klæddist Eva Laufey sægrænum síðkjól með gylltu mynstri.

Síðerma og stuttir kjólar áberandi

Aldís Amah Hamilton leikkona mætti í glæsilegum ljósbláum kjól í brúðkaup systur sinnar í lok júní. Kjóllinn er víður og stuttur í sniðinu með síðum ermum en slík snið hafa verið áberandi í sumar.

Blómakjóll

Sylvía Haukdal kökuskreytingakona birti mynd af sér á dögunum, prúðbúin á leið í brúðkaup. Á myndinni klæddist hún fallegum blómakjól, tekinn saman í mittið.


Tengdar fréttir

Brúð­hjón og fyrir­tæki flykkjast til út­landa

Brúðarkjólameistari finnur fyrir því að fleiri en áður kjósi að halda brúðkaup erlendis og segir það geta verið ódýrara en að halda veisluna hér á landi. Þá virðist lítið hafa dregið úr árshátíðarferðum fyrirtækja til útlanda þrátt fyrir verðbólgu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×