Erlent

Leita kafbáts sem hvarf nærri Titanic

Samúel Karl Ólason skrifar
Margar ferðir hafa verið farnar að flaki Titanic frá því það fannst á níunda áratug síðustu aldar.
Margar ferðir hafa verið farnar að flaki Titanic frá því það fannst á níunda áratug síðustu aldar. Getty/Xavier DESMIER

Lítill kafbátur sem notaður er til að ferja ferðamenn að flaki Titanic er horfinn. Leit stendur nú yfir en talið er að allt að fimm manns hafi verið um borð í kafbátnum þegar hann hvarf.

Smákafbátum er reglulega siglt að flaki skipsins fræga sem liggur á tæplega fjögur þúsund metra dýpi um sex hundruð kílómetrum undan ströndum Nýfundnalands.

Enn hefur ekki verið staðfest hve margir voru um borð, ef einhverjir, samkvæmt frétt BBC. Miðillinn vísar í samfélagsmiðlafærslur fyrirtækis sem kallast OceanGate Expeditions. Starfsmenn þess skrifuðu á samfélagsmiðla fyrir nokkrum dögum að lagt hefði verið af stað í siglingu að flaki Titanic.

Umrætt fyrirtæki rukkar ferðamenn rúmar 34 milljónir króna fyrir siglingu að flaki Titanic og kafbátaferð. Ferðalagið allt tekur um átta daga.

Þann 15. apríl árið 1912 sökk Titanic eftir að hafa rekist í ísjaka í jómfrúarferð sinni. Skipið er eitt frægasta skip heims en af um 2.200 farþegum er talið að rúmlega fimmtán hundrað hafi dáið. Flakið fannst árið 1985 en síðan þá hefur ítrekað verið kafað að því.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×