Átta norrænar kvikmyndir sýndar á nýrri kvikmyndahátíð Sena 28. apríl 2023 08:46 Hátíðin hefst með sýningu myndarinnar Kysset sem byggð er á bók eftir Stefan Sweid, Impatience of the Heart 1939. Alls verða átta myndir sýndar á hátíðinni í Háskólabíó. Hygge er ný norræn kvikmyndahátíð sem fram fer í Háskólabíó 4. til 8. maí. Á hátíðinni verða átta glænýjar kvikmyndir sýndar, frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Myndirnar eiga það sameiginlegt að hafa allar slegið í gegn í sínu heimalandi. „
Áhuginn er alltaf mikill þegar góð norræn mynd kemur í bíó og þær komu sérstaklega margar út í lok síðasta árs og byrjun þessa. Við ákváðum því að búa til hátíð til að fagna norrænum kvikmyndum. Við vonum að hún verði haldin árlega hér eftir,“ segir Lilja Ósk Diðriksdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Hátíðin hefst fimmtudagskvöldið 4. maí á dönsku myndinni Kossinn, og verður boðið upp á fordrykk í andyri Háskólabíós áður en myndin hefst. Hægt er að kaupa kort á allar myndirnar og staka miða. Lilja Ósk Diðriksdóttir, framkvæmdastjóri kvikmyndahátíðarinnar. Lilja segir nafn hátíðarinnar, Hygge, fanga stemminguna vel. „Þetta er drama, gaman og smá action en gamanið er heildarþráðurinn. Fólk getur komið í bíó og haft það bæði kósý og skemmtilegt, þetta eru myndir sem gaman er að fara á með maka, vinum eða mömmu og eiga góða kvöldstund. Við Íslendingar tengjum vel við skandinavískan húmor, sem er oft dálítið svartur. Þessar myndir ná til manns og toga aðeins í hjartað. Það er ein krimmamynd á listanum, Underverden 2, sem sló aðsóknarmet í Danmörku, og svo grín/hasarmyndin Sisu. Það eiga því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni,“ segir Lilja. Hægt er að horfa á kítlur úr myndunum hér fyrir neðan og kaupa miða hér. Kysset Danska kvikmyndin Kysset gerist 1913 og fylgir Antoni sem hefur það helsta markmið að klára þjálfun sína danska í riddaraliðinu. Á meðan á þjálfuninni stendur skipar hann sveit sinni að hjálpa auðmanni úr klípu og hittir í kjölfarið Edith dóttur hans sem lenti í slysi. Leikstjóri: Billie August. Myndin er byggð á bók eftir Stefan Sweid, Impatience of the Heart 1939. Aðalleikari myndarinnar, Esben Smed, fer einnig með aðalhlutverk í Óvæntar aðstæður sem er einnig sýnd á hátíðinni. Fædre og mødre Stórskemmtileg dönsk gamanmynd Fædre og mødre fjallar um hjón sem þurfa að fóta sig í gegnum ýmsar áskoranir í nýjum skóla dóttur sinnar. Þegar þau fara með í vinsæla útileguferð skólans reynir sérstaklega á þar sem þau gera allt til þess að vera samþykkt af hinum. Leikstjóri er Paprika Steen. Myndin var stærsta danska opnunarmyndin 2022 í Danmörku og hefur vakið mikla lukku. Stórskemmtilegur svartur húmor. Þekktir danskir leikarar eru í myndinni, m.a. Amanda Collin, sem fer með aðalhlutverkið í sci-fi seríu Ridley Scott, Raised by Wolves, og Katrine Greis-Rosenthal sem fór með aðahlutverk í A Taste of Hunger (ásamt Nikolaj Coster-Waldau) sem sló í gegn hér á Íslandi í fyrra. Jentetur Stórskemmtileg norsk gamanmynd sem fjallar um líf Lindu eftir slæman skilnað. Fyrrverandi eiginmaður hennar hefur kynnst fallegri fyrirsætu sem verður hægt og rólega meiri móðurímynd fyrir dóttur þeirra en Linda sjálf. Þegar þær fara saman í skíðaferð ásamt sameiginlegri vinkonu fer allt á hliðina og óvæntir hlutir gerast. Leikstjóri er Katarina Launing. Sérstakt vinkonukvöld verður haldið þriðjudaginn 9. maí í Háskólabíói á myndina. Underverden 2 Danska stórmyndin Underverden 2 er sjálfstætt framhald fyrstu myndarinnar sem fjallar um fyrrum hjartaskurðlækninn Zaid sem nú er í fangelsi eftir að hafa hefnt dauða bróður síns fyrir 7 árum. Þegar hann fær boð frá leyniþjónustunni um að ljóstra upp um stærsta glæpagengi Kaupmannahafnar gegn því að vera látinn laus, sér hann tækifæri til þess að endurheimta fjölskyldulíf sitt. Leikstjóri er Fenar Ahmad. Underverden 2 sló aðsóknarmet með með stærstu opnun í bíó á árinu í Danmörku. Myndin hefur fengið mikið lof gagnrýnenda enda vel gerð og hrikalega góð. Andra akten Sænska rómantíska dramamyndin Andra Akten fylgir Evu sem finnst hún hafa lítinn tíma fyrir sér þegar hún er við það að fara á eftirlaun. En þegar vinsamband myndast á milli hennar og stórleikarans Harlod Skoog áttar hún sig á því að lífið er ekki við það að verða búið, heldur einungis rétt að byrja. Leikstjóri er Marten Klingberg. Andra akten er yndisleg og rómantísk, gamandrama með stórleikaranum Rolf Lassgard (Exit, A Man Called Ove) og Lena Olin (Hunters). Meter i sekundet Danska gamanmyndin Meter i sekundet fjallar um hvernig líf Marie og Rasmus umturnast er þau flytja frá Kaupmannahöfn í afskekkta bæinn Velling þar sem Rasmus hefur fengið starf sem kennari. Rasmus er fljótur að aðlagast á meðan Marie verður fyrir menningaráfalli. Með tímanum áttar Marie sig hægt og rólega á því að mögulega þurfi hún jafn mikið á bænum að halda og bærinn á henni. Leikstjóri er Hella Joof. Myndin er byggð á bókinni Meter i sekundet (The Land of Short Sentences) eftir Stile Pilgaard 2020. SISU Hasar myndin Sisu frá Finnlandi fjallar um fyrrum hermann sem finnur gull í óbyggðum Lapplands. Er hann ætlar að ferðast með gullið til baka inn í borgina verður hann fyrir óvæntri árás frá hermönnum Nasista. Leikstjóri er Jalmari Helander sem er einnig leikstjóri Rare Exports og Big Game. Myndin verður sýnd á Tiff hátíðinni í september. Spennu - grín hasarmynd af bestu gerð. Lykkelige omstændigheder Rómantíska gamanmyndin Lykkelige omstændigheder fjallar um Karoline sem verður óvart ólétt. Systir hennar Katrine er hinsvegar með áætlun sem gæti leyst vandamál þeirra beggja, en ekkert fer samkvæmt áætlun. Leikstjóri: Anders W. Berthelsen. Anders leikstýrði einnig vinsælu spennumyndinni Held for Ransom 2019. Hann er sjálfur leikari og hefur leikið í fjölmögum kvikmyndum ásamt vinsælu þáttaröðinni DNA
Bíó og sjónvarp Kvikmyndahús Menning Mest lesið Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Lífið „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Ósanngjarnt hvernig stúlkan var dregin inn í umræðu sem var að miklu leyti „algjör þvæla“ Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Kappakstur milli Hjálmars og Magneu Lífið Bein útsending: Heimir Guðjóns og Höddi Magg í einvígi aldarinnar Lífið Fleiri fréttir Spennan magnast í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum! Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Match Attax Extra viðburður í Fótboltalandi á laugardaginn! Elira flutt á yndislegan stað á Kirkjusandi Bjargvættur fyrir þurrt og þreytt hár Svefninn mun dýpri og betri með tilkomu Neubria Sleep Stórkostleg áhrif á fíngert hár Glódís Rún og Breki frá Austurási sigruðu slaktaumatöltið Þetta eru snyrtivörurnar sem skipta mestu máli Troðfullt á fermingarkvöldi Hagkaups Páskaegg fyrir sanna bragðarefi Askja frumsýnir nýjan og enn glæsilegri Mercedes-Benz EQB Litlu hlutirnir sem geta skipt sköpum Topp tíu listi yfir nauðsynlegar skíðavörur „Femarelle það eina sem hefur virkað fyrir mig“ Flottustu fermingartrendin hjá Galleri 17 í sannkallaðri „fashion“töku Topp tíu listi yfir förðun og húðumhirðu fyrir ferminguna Saltblár er litur ársins hjá KitchenAid Spretthlaup frá grænmetisdeildinni niður í leikfangadeild Spennandi snúningur á ljúffengri klassík Sjá meira