Menning

Stjörnu­fans á frum­­sýningu

Íris Hauksdóttir skrifar
Það var margt um manninn í Borgarleikhúsinu á frumsýningu á verkinu Svartþresti á föstudaginn.
Það var margt um manninn í Borgarleikhúsinu á frumsýningu á verkinu Svartþresti á föstudaginn. Vísir/Hulda Margrét

Öllu var tjaldað til á síðustu frumsýningu leikársins síðastliðið föstudagskvöld en um er að ræða verkið Svartþröst í Borgarleikhúsinu. Verkið er í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar og með aðalhlutverkin tvö fara þau Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Valur Freyr Einarsson.

Margt var um manninn og ljóst að mikil spenna ríkti í salnum fyrir verkinu sem er bæði átakanlegt og áleitið í senn eftir eitt fremsta leikskáld Skota síðustu áratuga, David Harrower .

Skrifstofumaður á miðjum aldri fær heimsókn frá ungri konu, sem leitar eftir uppgjöri vegna sambands þeirra mörgum árum áður. Hann á að baki fangelsisdóm, hefur hafið nýtt líf undir nýju nafni og tilviljun ein gerir það að verkum að konan hefur uppi á honum. Bæði eru þau þjökuð af fortíðinni sem hefur markað djúp spor í tilvist þeirra. Hún hefur setið föst í sömu sporum í fimmtán ár á meðan hann hefur reynt að byrja upp á nýtt, en þegar hún birtist er ljóst að hið liðna verður ekki flúið.

Örn Eldjárn, Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri, Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri og Hilmir Snær Guðnason.Vísir/Hulda Margrét
Hildur Vala Baldursdóttir, Pálmi Gestsson og Sólveig Guðmundsdóttir.Vísir/Hulda Margrét
Herdís Stefánsdóttir, Blair Alexander, Salka Valsdóttir og Þura Stína.Vísir/Hulda Margrét
Steinunn Þórhallsdóttir, Breki Karlsson og Felix Bergsson.Vísir/Hulda Margrét
Edda Jónsdóttir og Marta Nordal.Vísir/Hulda Margrét
Örn Eldjárn sá um tónlistina í verkinu og Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri sýningarinnar.Vísir/Hulda Margrét
Elísabet, Kjartan Ragnarsson, Sigríður Margrét, Sveinn, Sesselía og Inga Sigríður.Vísir/Hulda Margrét
Gunnar Hansson og Hiroko Ara.Vísir/Hulda Margrét
Guðný Steinssdóttir og Rósa Magnúsdóttir.Vísir/Hulda Margrét
Stefán Jónsson og Helga I. Stefánsdóttir.Vísir/Hulda Margrét
Alexia Björg Jóhannesdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir.Vísir/Hulda Margrét
Björk Finnbogadóttir og Ólafur Steingrímsson.Vísir/Hulda Margrét
Pálmi Gestsson og Sólveig Guðmundsdóttir fóru með sömu hlutverk þegar verkið var sett upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu árið 2007.Vísir/Hulda Margrét
Rakel Ýr Stefánsdóttir og Edward Óliversson.Vísir/Hulda Margrét
Jóhann G. Jóhannsson og Guðrún Kaldal.Vísir/Hulda Margrét






Fleiri fréttir

Sjá meira


×