Menning

Koll­hnís og Eld­gos til­nefndar

Bjarki Sigurðsson skrifar
Rán Flygenring og Arndís Þórarinsdóttir eru tilnefndar fyrir bækur sínar.
Rán Flygenring og Arndís Þórarinsdóttir eru tilnefndar fyrir bækur sínar. Aðsend/Gassi/Norden

Bækurnar Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Eldgos eftir Rán Flygenring eru tilnefningar Íslands til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023. Verðlaunin verða afhent í Osló í lok október.

Fjórtán bækur frá norrænu löndunum og málsvæðunum eru tilnefndar í ár. Verkin kafa ofan í nýjar fjölskyldugerðir, hvetja lesendur til að líta heiminn með nýjum augum og birta vináttu barna þrátt fyrir tungumálahindranir og ólíka siði.

Tvær íslenskar bækur eru tilnefndar. Það eru Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur sem Mál og menning gaf út og Eldgos eftir Rán Flygenring sem Angústúra gaf út. 

Kollhnís fjallar um fimleikastrákinn Álf og litla bróður hans Eika sem er einhverfur. Í rökstuðningi fyrir tilnefningunni segir að bókin sé frumleg og áhrifarík saga um erfið málefni. 

Eldgos er myndabók þar sem fylgst er með degi í lífi drengsins Kaktusar og móður hans Brá. Hún starfar sem leiðsögumaður og eru þau stödd úti á landi að skoða fjöll þegar eldgos hefst. Í rökstuðningi fyrir tilnefningunni segir að myndirnar sem prýða bókina séu fullar af húmor og að sagan risti djúpt þrátt fyrir að virðast hress og einföld. 

Handhafi barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023 verður kynntur á verðlaunaafhendingu þann 31. október í Ósló í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Verðlaunahafinn hlýtur verðlaunagripinn Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur, rétt rúmar sex milljónir króna. 

Hér fyrir neðan má sjá allar tilnefningarnar. 

Danmörk

Frank mig her, Line-Maria Lång, Karen Vad Bruun og Cato Thau-Jensen (myndskr.)…

Tænk ikke på mig, Vilma Sandnes Johansson. Unglingaskáldsaga, Gutkind Forlag, 2…

Finnland

Kaikki löytämäni viimeiset, Maija Hurme. Myndabók, Etana Editions og Schildts &…

Vi ska ju bara cykla förbi, Ellen Strömberg. Unglingaskáldsaga, Schildts & Söd…

Færeyjar

Strikurnar, Dánial Hoydal og Annika Øyrabø (myndskr.) Myndabók, Bókadeild Føroy…

Grænland

Pipa Sulullu qaangiipput, Naja Rosing-Asvid. Myndabók, Milik Publishing, 2022.

Ísland

Kollhnís, Arndís Þórarinsdóttir. Barnabók, Mál og menning, 2022.

Eldgos, Rán Flygenring. Myndabók, Angústúra, 2022.

Noregur

Ikke!, Gro Dahle og Svein Nyhus (myndskr). Myndabók, Cappelen Damm, 2022.

Berre mor og Ellinor, Ingrid Z. Aanestad og Sunniva Sunde Krogseth (myndskr.). …

Samíska málsvæðið

Arvedávgeriikii, Mary Ailonieida Sombán Mari og Sissel Horndal (myndskr.). Mynd…

Svíþjóð

Farbröder, Teresa Glad. Myndasaga byggð á heimildum, Natur & Kultur, 2022.

Glömdagen, Sara Lundberg. Myndabók, Mirando Bok, 2021.

Álandseyjar

Giraffens hjärta är ovanligt stort, Sofia Chanfreau og Amanda Chanfreau (myndsk…






Fleiri fréttir

Sjá meira


×