Innlent

Ríkisstjórnin fresti flestum aðgerðum til næstu ára

Heimir Már Pétursson skrifar
Fjármálaráðherra og innviðaráðherra hlýða á forsætisráðherra fara yfir helstu áherslur í ný uppfærðri fjármálaáætlun.
Fjármálaráðherra og innviðaráðherra hlýða á forsætisráðherra fara yfir helstu áherslur í ný uppfærðri fjármálaáætlun. Vísir/Vilhelm

Stjórnarandstæðingar segja uppfærða fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar hvorki vinna gegn verðbólgu né bæta heimilum landsins upp miklar vaxtahækkanir að undanförnu. Ríkisstjórnin fresti meira og minna öllum aðhaldsaðgerðum fram á næstu ár.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hóf umræðuna um fjármálaáætlunina á Alþingi í dag. Áætlunin fæli í sér skýr markmið.

Bjarni Benediktsson segir ýmislegt hafa verið gert til að fólk geti losað sig úr leiguhúsnæði og keypt sitt eigið.Vísir/Vilhelm

„Í fyrsta lagi að styðja við Seðlabankann í því verkefni að tempra verðbólgu. Í öðru lagi að verja árangur síðustu ára við að byggja upp framúrskarandi lífskjör og kaupmátt. Og í þriðja lagi að byggja undir áframhaldandi vöxt samfélagsins til framtíðar,“ sagði Bjarni í upphafi máls.

 Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar sagði fjármálaáætlunina hins vegar engan vanda leysa.

„Ég hélt kannski í tíu prósenta verðbólgu. Eftir tólf stýrivaxtahækkanir. Hæstu seðlabankavexti í tólf ár að það kæmi eitthvað afgerandi frá þessari ríkisstjórn,“ sagði Jóhann Páll.

Nú lægi það hins vegar fyrir að ríkisstjórnin ætlaði varla að lyfta litla fingri til að taka á verðbólgunni sem væri að bíta á fólki í dag.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina gera lítið til að ná niður verðbólgunni.Vísir/Vilhelm

„Öll umfjöllun um tilfærslukerfin í húsnæðismálum er í þátíð hjá hæstvirtum ráðherra. Hann telur bara að þau séu búin að gera svo vel. Að fólkið hafi það svo gott og telur enga þörf á frekari aðgerðum,“ sagði Jóhann Páll.

Fjármálaráðherra sagði ýmislegt hafa verið gert til að auðvelda fólki í leiguhúsnæði til að kaupa sitt eigið húsnæði. Meðal annars með nýtingu séreignarsparnaðar og nú síðast einnig tilgreindu séreignarinnar til íbúðarkaupa.

„Við erum síðan að horfa upp á þá þróun á leigumarkaði að leiguverð hefur ekki haldið í við verðlag frá 2019. Þannig að það hefur orðið raunlækkun þar. Og ef við horfum til síðustu tólf mánaða hafa laun og leiga hækkað næstum jafn mikið. En að öðru leyti heyrist mér að Samfylkingin sé bara gamla góða Samfylkingin. Hærri skattar, meiri útgjöld. Meiri skatta og stærra ríki,” sagði Bjarni Benediktsson.

Í kvöldfréttum var einnig rætt í beinni útsendingu við þingmennina Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur Viðreisn og Björn Leví Gunnarsson frá Pírötum sem einnig tóku þátt í umræðunni í dag. Viðtalið má sjá í sjónvarpsfréttinni í spilaranum með þessari frétt.


Tengdar fréttir

Geggjað að­halds­prógram dugi ekki til

Þingmaður Viðreisnar segir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar vera eins og geggjað aðhaldsprógram sem ekki eigi að hefjast fyrr en á næsta ári. Boðaðar aðgerðir skili engu í baráttunni við verðbólguna í dag. Þingmaður Framsóknarflokksins segir áætlunina hins vegar sýna svart á hvítu að ríkisstjórninni sé alvara í að ná verðbólgunni niður og verja um leið viðkvæmustu hópana.

Segir að­gerðirnar ekki duga

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að vinna gegn verðbólgu ekki duga. Hann segir boðaðar skattahækkanir illa ígrundaðar. Þá lýsir stjórn Félags atvinnurekenda yfir vonbrigðum með að ekki eigi að lækka tolla.

Skattar á fyrir­tæki hækkaðir og sam­hæfingar­mið­stöð frestað

Skattur á fyrirtæki verður hækkaður tímabundið um eitt prósentustig á næsta ári og almenn sparnaðarkrafa á allar stofnanir nema heilbrigðisstofnanir og löggæslu verður hækkuð úr einu í tvö prósent í aðgerðum stjórnvalda til að vinna gegn verðbólgu. Ívilnunum vegna kaupa á vistvænum bifreiðum verður hætt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×