Orðinn 75 ára og ráðinn stjóri Crystal Palace Sindri Sverrisson skrifar 21. mars 2023 08:19 Roy Hodgson var síðast stjóri Watford sem hann stýrði seinni hluta síðustu leiktíðar. Getty/Marc Atkins Roy Hodgson hefur ekki enn sagt sitt síðasta sem knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni því hann hefur verið ráðinn stjóri Crystal Palace og mun stýra liðinu út yfirstandandi leiktíð.
Hodgson, sem er 75 ára gamall, tekur við Palace af Patrick Vieira sem var rekinn á dögunum. Hodgson hefur þar með tíu daga til að koma sér inn í hlutina að nýju hjá Palace, eftir að hafa síðast stýrt liðinu 2017-2021, en nú er hlé á ensku úrvalsdeildinni vegna landsleikja. Palace hefur tapað síðustu fjórum leikjum sínum í röð og er í 12. sæti með 27 stig, aðeins þremur stigum frá fallsæti. It's like we've gone back in time!Roy Hodgson will take the reins at Crystal Palace once again #BBCFootball pic.twitter.com/hyudA0GYml— BBC Sport (@BBCSport) March 21, 2023 Eins og fyrr segir stýrði Hodgson liði Palace, sem hann var hjá sem strákur, í fjögur tímabil og endaði liðið í 11., 12., 14. og 14. sæti. Vieira tók svo við af Hodgson þegar samningur hans rann út. Ray Lewington verður Hodgson á ný til aðstoðar sem þjálfari en Paddy McCarthy, sem stýrði Palace til bráðabirgða eftir brottrekstur Vieira, verður aðstoðarstjóri. Steve Parish, stjórnarformaður Palace, bauð Hodgson og Lewington velkomna aftur: „Þessi staða sem við erum í er augljóslega mikil áskorun en við teljum að reynsla Roys og Rays, sem og þekking þeirra á félaginu og leikmönnum, ásamt Paddy muni hjálpa til við það bráða verkefni að halda okkur í deildinni,“ sagði Parish.
Enski boltinn Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Sjá meira