Enski boltinn

Mourinho grætti Salah

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
José Mourinho notaði Mohamed Salah mjög sparlega hjá Chelsea.
José Mourinho notaði Mohamed Salah mjög sparlega hjá Chelsea. getty/Darren Walsh

José Mourinho gagnrýndi Mohamed Salah einu sinni svo harðlega að Egyptinn fór að gráta.

Salah var um tíma á mála hjá Chelsea en spilaði aðeins nítján leiki fyrir liðið og skoraði tvö mörk. Í einum þessara leikja, gegn Norwich City, var hann tekinn af velli í hálfleik eftir slaka frammistöðu. Og Mourinho lét Salah heyra það eins og Jon Obi Mikel rifjaði upp.

„Salah átti slakan leik. Mourinho kom inn í klefa og skammaði hann heiftarlega,“ sagði Mikel. 

„Hann var grátandi og það sem gerðist var að Mourinho tók hann út af. Það hefði verið auðvelt að taka hann bara út af og segja honum að hann hefði ekki spilað vel. En hann urðaði yfir hann og tók hann út af.“

Salah sneri aftur í ensku úrvalsdeildina 2017 þegar Liverpool keypti hann frá Roma. Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna með Liverpool og skorað 174 mörk fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×