Fótbolti

Sjáðu Ronaldo skora fernu fyrir arabíska liðið og ná marki númer fimm hundruð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo undirbýr sig fyrir það að taka aukaspyrnu fyrir lið Al Nassr.
Cristiano Ronaldo undirbýr sig fyrir það að taka aukaspyrnu fyrir lið Al Nassr. Getty/Yasser Bakhsh/

Cristiano Ronaldo minnti á sig í gær þegar hann skoraði fernu fyrir Al Nassr í 4-0 sigri liðsins í sádiarabísku deildinni.

Fernuna skoraði Ronaldo á hálftíma í kringum hálfleikinn en eitt af mörkunum kom úr vítaspyrnu.

Hinn 38 ára gamli Portúgali skoraði sitt fimm hundraðasta deildarmark á ferlinum þegar hann opnaði markareikninginn sinn. Hann hefur nú skorað 503 deildarmörk á ferli sínum.

Ronaldo gekk til liðs við Al Nassr eftir HM í Katar eftir að hafa samið um starfslok við Manchester United.

Hann skoraði ekki í tveimur fyrstu leikjum sínum með Al Nassr en hefur nú skorað fimm mörk í síðustu tveimur leikjum. Ronaldo er því með yfir mark að meðaltali í leik fyrir félagið.

Þetta er fyrsta ferna Ronaldo í leik síðan að hann skoraði fjögur fyrir portúgalska landsliðið á móti Litháen í september 2019. Síðasta ferna hans fyrir félagslið kom fyrir Real Madrid á móti Girona í mars 2018 eða fyrir næstum því fimm árum síðan.

Með sigrinum komst Al Nassr aftur upp í toppsæti sádiarabísku deildarinnar eftir sextán leiki. Liðið er með 37 stig eins og Al Shabab.

Hér fyrir neðan má sjá fernuna hans Ronaldo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×