Innlent

Minnis­blaðið um flug­vélina hafi komið of seint frá Gæslunni

Máni Snær Þorláksson skrifar
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd Alþingis.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd Alþingis. Vísir/Vilhelm

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Landhelgisgæsluna hafa skilað minnisblaði um mikilvægi þess að fá aukið fjármagn of seint. Minnisblaðið hafi borist þegar þingmenn voru komnir í jólafrí.

Fjárlaganefnd Alþingis fundaði í morgun um fjárhagsmálefni Landhelgisgæslunnar. Aðallega var rætt um TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, á fundinum en svo virðist vera sem rekstri hennar verði haldið áfram, að minnsta kosti út þetta ár.

Á fundinn mættu fulltrúar frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna, Félagi skipstjórnarmanna, ríkislögreglustjóra og almannavörnum, Veðurstofunnar og Háskóla Íslands. Fulltrúarnir upplýstu nefndina um mikilvægi vélarinnar og hlutverk hennar ásamt því að veita tæknilegar upplýsingar um hana.

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, segir að um sé að ræða öfluga vél sem sinni fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki. „Það er búið að vera bagalegt fjármálalega séð í rauninni að hún sé ekki alltaf til staðar hér,“ segir hann.

TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar.Landhelgisgæslan

Komið er að miklu viðhaldi í tækjabúnaði flugvélarinnar og að sögn Vilhjálms er fer verkefnum hennar hér á landi fjölgandi. „Þannig að þetta er bara vinna sem við þurfum að vinna með ráðuneytinu og þessum stofnunum fram að næstu fjárlögum. Bara hvernig við ætlum að fjármagna rekstur Landhelgisgæslunnar almennt,“ segir hann.

Þá segir hann að þetta sé spurning um hvernig hægt sé að forgangsraða og ganga úr skugga um að fjármunir hins opinbera séu nýttir eins vel og hægt er.

„Við erum bara einhvern veginn stödd í miðjum storminum og það er bara fínt ef við getum tryggt TF-SIF áfram. Svo þurfum við bara að sjá hvort það sé hagkvæmast og hvort við náum mestum árangri þannig. Er hægt að nýta peningana betur eða eru þeir bara eins vel nýttir og hægt er? Það er bara það sem við þurfum að skoða núna.“

Minnisblaðið kom seint

Það er þó eitt sem Vilhjálmi finnst skipta miklu máli þegar kemur að umræðunni um flugvélina. Það sé hve seint Landhelgisgæslan skilaði minnisblöðum um mikilvægi þess að fá aukið fjármagn. Upphaflegt minnisblað, sem Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, skrifaði, um slæma fjáhagsstöðu Landhelgisgæslunnar barst í apríl í fyrra, en í því minnisblaði komu fram hugmyndir um að selja vélina ef ekki kæmi meira fjármagn. 

Þegar ákveðið var að auka fjárveitingu til Landhelgisgæslunnar um 600 milljónir króna stóð fjárlaganefnd í þeirri trú að það væri nóg. Vilhjálmur segir upplýsingar frá Landhelgisgæslunni um að þetta væri ekki nóg hafi borist of seint.

„Ef fólk bara aðeins andar ofan í kviðinn og skoðar minnisblöðin og annað sem búið er að birta opinberlega um þetta mál þá klárar fjárlaganefnd aðra umræðu fjárlaga í lok nóvember, byrjun desember. En það er ekki fyrr en 8. desember sem Landhelgisgæslan segir að þessar 600 milljónir í aukinn rekstur og 250 milljónir í fjáraukalögum muni ekki duga til, það þurfi að fara í frekari hagræðingaraðgerðir en segir ekkert hvaða frekari aðgerðir það eru. Þannig að þá lítur út fyrir að það þurfi að fara í frekari aðgerðir en það er ekkert sem „alertar“ okkur að það sé ekki hægt að halda nokkurn veginn óbreyttum rekstri bara með því að fresta framkvæmdum, viðhaldi og svona.“

Í minnisblaðinu var einnig velt upp þeim möguleika að selja varðskipið Freyju.Vilhelm Gunnarsson

Tíu dögum eftir að minnisblaðið barst frá Landhelgisgæslunni fór Alþingi svo í jólafrí, nánar tiltekið þann 16. desember. „En minnisblaðið frá Landhelgisgæslunni um að það þurfi stærri aðgerðir til að ná endum saman heldur en að höggva í reksturinn – það kemur 18. desember, eftir að þingið er farið í frí,“ segir Vilhjálmur.

Í því minnisblaði hafi komið fram að einu leiðirnar til að laga reksturinn væru að selja flugvélina, varðskipið Freyju eða hætta með eina þyrluáhöfn. 

„Þannig það er ekki eins og að hvorki ráðuneytið né fjárlaganefnd hefði mátt vita þetta því þessar upplýsingar koma ekki fram fyrr en eftir að við ljúkum fjárlagaumræðum.“

Vélin áfram í rekstri út árið

Framtíð vélarinnar til lengri tíma er enn óljós en svo virðist þó vera sem rekstri hennar verði haldið áfram að minnsta kosti út árið. „Ríkisstjórnin hefur allavega greinilega ákveðið á sínum vinnufundi að beita sér við því að rekstri vélarinnar verði haldið áfram út þetta ár. En það gerist þá ekki nema þau komi með fjáraukalög sem við fjöllum þá um þegar þau koma, sem verður væntanlega ekki fyrr en í haust,“ segir Vilhjálmur.

„Þannig að mér skilst að vélin muni þá vera áfram í rekstri þetta árið og beðið verði eftir niðurstöðu úr úttekt um rekstur Landhelgisgæslunnar á meðan.“

Vilhjálmur segir að enginn ágreiningur sé um mikilvægi verkefnanna sem flugvélin sinnir. „Allir eru sammála um mikilvægi þessara verkefna og þetta er bara spurning um hvernig við gerum þetta á sem skynsamlegastan og hagkvæman hátt,“ segir hann.

Engar staðgengilsvörur fyrir neyðarviðbragðið

Rætt hefur verið um aðrar og hagkvæmari lausnir sem gætu komið í stað flugvélarinnar. Þær virðast þó ekki geta sinnt öllum þeim hlutverkum sem vélin sinnir. „Af því við erum svo smá þá er hún kannski með fjölbreyttara hlutverk,“ segir Vilhjálmur.

„Eins og við tölum um í samkeppnisrétti og svona þá eru engar staðgengilsvörur komnar fyrir þetta neyðarviðbragð. Það er alveg einhver tækni komin í staðinn en hún virkar ekki kannski í neyðarviðbragði. Þá er það kannski hin spurningin sem við höfum látið órætt of lengi, að við eigum þessa flottu vél en við höfum haft hana svo lítið til taks. Það er náttúrulega búið að vera bagalegt, við hefðum kannski átt að byrja þessa umræðu mikið fyrr.“

Tengd skjöl


Tengdar fréttir

„Við erum ákaflega þakklát og ánægð“

Forsvarsmenn Landhelgisgæslunnar fagna því mjög að ríkisstjórnin hafi ákveðið að endurskoða ákvörðun um sölu á TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar sem styr hefur staðið um í vikunni. Viðbrögð við sölunni hafi ekki komið á óvart enda sé flugvélin gríðarlega mikilvægt öryggistæki.

Flug­vélin verði ekki seld nema önnur taki við

Forsætisráðherra segir að skoða þurfi mun betur söluna á flugvél Landhelgisgæslunnar, sem dómsmálaráðherra boðaði í gær. Ekki væri hægt að ráðast í söluna fyrr en búið væri að fara yfir öll þau sjónarmið sem komið hefðu fram. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×