Fótbolti

Guðný skoraði í þægilegum sigri AC Milan

Hjörvar Ólafsson skrifar
Guðný Árnadóttir var á skotskónum fyrir AC Milan í dag. 
Guðný Árnadóttir var á skotskónum fyrir AC Milan í dag.  Getty/Pier Marco Tacca

Guðný Árnadóttir skoraði seinna mark AC Milan í 2-0 sigri liðsins gegn Parma í 13. umferð ítölsku efstu deildarinnar í fótbolta kvenna í dag. 

Mark íslensku landsliðskonunnar kom eftir tæplega klukkutíma leik en þetta var fyrsta deildarmark hennar á yfirstandandi leiktíð. 

Guðný lék allan leikinn í bakvarðarstöðunni hjá AC Milan. Margrét Árnadóttir, sem gekk til liðs við Parma frá Þór/KA á dögunum lék sinn fyrsta leik fyrir ítalska liðið í þessum leik. 

Margrét lék síðasta hálftímann rúman fyrir Parma sem situr á botni deildarinnar með einungis sex stig. AC Milan er hins vegar í fimmta sæti með 22 stig eftir þennan sigur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×