Ranieri ekki dauður úr öllum æðum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. desember 2022 21:01 Ranieri er mættur aftur til Cagliari. Getty Images Ítalski knattspyrnuþjálfarinn Claudio Ranieri hefur tekið að sér sitt 23. þjálfarastarf á ferlinum. Hann var á Þorláksmessu ráðinn þjálfari Cagliari sem spilar í Serie B á Ítalíu.
Ranieri er kannski hvað þekktastur fyrir ótrúlegt afrek sitt með Leicester City en hann gerði liðið að Englandsmeisturum árið 2016. Þessi 71 árs gamli Ítali hefur hins vegar komið víða við á ferli sínum og þjálfað þó nokkur stórliðin. Hann stýrði Chelsea áður en José Mourinho tók við og þá hefur hann þjálfað Fulham og Watford á Englandi. Á Ítalíu hefur hann þjálfað flest stærstu lið landsins: Juventus, Roma, Inter Milan og Napoli meðal annars. Á Spáni stýrði hann Valencia og Atlético Madríd. Þá þjálfaði hann landslið Grikklands árið 2014. Un'attesa lunga trent'anni. Bentornato a casa, Mister. https://t.co/vvpBnawQlA pic.twitter.com/Jnkwsy0XaB— Cagliari Calcio (@CagliariCalcio) December 23, 2022 Þetta er í annað sinn sem Ranieri tekur við Cagliari en hann stýrði liðinu frá 1988 til 1991. Liðið situr sem stendur í 14. sæti Serie B, næstefstu deildar á Ítalíu, með aðeins fimm sigra í fyrstu 18 deildarleikjum sínum.
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira