Veður

Mjög kalt og frostið gæti farið niður fyrir tuttugu stig

Atli Ísleifsson skrifar
Gera má ráð fyrir áframhaldandi kuldatíð út næstu viku með frosti á öllu landinu.
Gera má ráð fyrir áframhaldandi kuldatíð út næstu viku með frosti á öllu landinu. Vísir/Vilhelm

Mjög kalt verður á landinu í dag þar sem algengar frosttölur verða á bilinu sjö til fjórtán stig. Frostið gæti þó orðið undir tuttugu stigum á stöku stað og sé líklegast að það gerist í innsveitum norðaustanlands.

Á vef Veðurstofunnar segir að útlit sé fyrir breytilega átt, þrjá til tíu metra á sekúndu með þurru og björtu veðri nokkuð víða, en sums staðar lítilsháttar él við ströndina.

Lægð er nú að myndast og dýpka vestur af landinu og mun hún þokast austur og nálgast síðar í dag. Lægðin sé köld þannig að úrkoma sem henni fylgi verði snjókoma.

„Í kvöld má því gera ráð fyrir suðaustan 8-15 með sjókomu á vestanverðu landinu og einnig á Suðurlandi þegar líður nær miðnætti.

Á morgun er síðan gert ráð fyrir austan og suðaustan 10-18 m/s og allvíða snjókoma, en styttir smám saman upp seinnipartinn. Hægari vindur á Norðaustur- og Austurlandi og dálítil él við ströndina. Frost 2 til 15 stig, kaldast norðaustantil.

Þó margir hafi verið orðnir langeygir eftir snjónum, þá getur snjókoman skapað erfið akstursskilyrði fyrir ferðalanga. Þeir sem vilja forðast slíkt, ættu því að skipuleggja ferðir eftir veðri.

Þegar litið er á spár lengra fram í tímann, þá má gera ráð fyrir áframhaldandi kuldatíð út næstu viku með frosti á öllu landinu. Sá snjór sem hefur fallið síðustu daga og mun falla á næstunni mun því haldast fram að jólum ef kuldaspáin rætist og þar með verða jólin hvít nokkuð víða á landinu. Það breytir því þó ekki að það er snjólétt (lítil snjódýpt) á landinu miðað við árstíma, sérílagi norðan- og austanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákortið fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Austan og suðaustan 10-18 m/s og víða snjókoma, en úrkomulítið um kvöldið. Hægari vindur á Norðaustur- og Austurlandi og dálítil él við ströndina. Frost 2 til 15 stig, kaldast norðaustantil.

Á sunnudag: Norðaustan 8-15 og dálítil él, en þurrt sunnan- og suðvestanlands. Áfram kalt í veðri.

Á mánudag og þriðjudag: Allhvöss eða hvöss norðaustanátt og él um landið norðan- og austanvert. Frost 2 til 10 stig.

Á miðvikudag (vetrarsólstöður) og fimmtudag: Norðlæg átt og dálítil él, en þurrt sunnan heiða. Talsvert frost.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×