Menning

Fólk ætti að vera sent til Færeyja í stað heilsuhælis

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Einstakar týpur sem RAX kynntist í Færeyjum.
Einstakar týpur sem RAX kynntist í Færeyjum. RAX Augnablik

„Þetta er eins og að fara aftur í tímann.“ Svona lýsir Ragnar Axelsson ljósmyndari litlu þorpi í Færeyjum í nýjasta þættinum af RAX Augnablik.

Árið 1988 sigldi RAX í Nólsey en eyjan hefur rólegan gamaldags sjarma. 

„Það er svolítið gaman að fylgjast með þessu rólegheitarlífi og þessum vingjarnlegheitum sem þú mætir alls staðar í Færeyjum.“

Í Nólsey tóku á móti honum tveir menn sem minntu hann á Gög og Gokke. Hann velti því fyrir sér hvort þeir væru fluttir í kyrrðina í Nólsey til þess að flýja frægðina.

„Í stað þess að setja fólk á heilsuhæli þá ætti að senda það til Færeyja.“

Frásögnina má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: RAX Augnablik

Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. 

Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.


Færeyjar eru í sérstöku uppáhaldi hjá Ragnari Axelssyni og þá sérstaklega einstöku týpurnar og skrautlegu karakterarnir sem þar búa.  Hann hefur nokkrum sinnum áður sagt frá ævintýrum sínum í Færeyjum í eldri þáttum af RAX Augnablik og má sjá þrjú vel valin dæmi hér fyrir neðan.

Litli drengurinn í Elduvík

Ragnar heimsótti þorpið Elduvík í Færeyjum árið 1997 og náði þar einstökum myndum, þar á meðal af nýfæddum litlum dreng. Áður en bókin Andlit norðursins var endurútgefin fór ljósmyndarinn aftur í sama þorpið til þess að finna strákinn á myndinni á ný.

Lífið í Fugley

Árið 1988 dvaldi Ragnar í mánuð í Færeyjum og myndaði mannlífið. Í Fugley eru tvær byggðir, Kirkja og Hattarvík, en þar kynntist ljósmyndarinn einstökum karakterum.

Á fýlaveiðum

Færeyingar eru að mörgu leyti í sterkum tengslum við náttúruna og Ragnar elti eitt sinn mann að nafni Heine upp á fuglabjarg til þess að fylgjast með honum veiða fýl með háfi. Lífið í Færeyjum er í öðrum takti en við eigum að venjast sem Ragnar segir að sé stór hluti af sjarma eyjanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×