Tíska og hönnun

Raf Simons leggur upp laupana

Bjarki Sigurðsson skrifar
Raf Simons er hann vann hönnuður ársins á CFDA-verðlaunahátíðinni í New York árið 2017.)
Raf Simons er hann vann hönnuður ársins á CFDA-verðlaunahátíðinni í New York árið 2017.) Getty/Dia Dipasupil

Fatahönnuðurinn Raf Simons hefur tilkynnt að vor- og sumarlína samnefnds fatamerkis hans sé sú síðasta sem kemur út. Simons hefur unnið til fjölda fatahönnunarverðlauna í gegnum tíðina en það er enn óljóst hvað framtíð hans ber í skauti sér. 

Raf Simons gaf út sína fyrstu fatalínu árið 1995, fyrir 27 árum. Síðan þá hefur hann unnið til fjölda verðlauna og unnið með nokkrum af stærstu tískuhúsum heims, líkt og Christian Dior og Calvin Klein. 

Strigaskór Raf Simons eru afar vinsælir og geta verið afar dýrir.

Hann tilkynnti í dag á Instagram-síðu sinni að fatalína Raf Simons merkisins sem kemur út næsta vor verði sú síðasta. Hann þakkar öllum sem unnu með honum fyrir stuðninginn.

„Mig skortir orð til að lýsa því hversu stoltur ég er af því sem við höfum áorkað. Ég er þakklátur fyrir ótrúlegan stuðning frá teyminu mínu, frá samstarfsaðilum, frá fjölmiðlum, kaupendum, frá vinum mínum og fjölskyldu og frá dyggum aðdáendum mínum,“ skrifaði hinn belgíski Simons á Instagram. 

Sem stendur starfar Simons sem einn af sköpunarstjórum Prada. Hann hefur ekki tilkynnt um hvort hann ætli að halda áfram þar eða segja það gott í tískuheiminum í bili. 


Tengdar fréttir

Raf Simons slær aftur í gegn

Aðalhönnuður Jil Sander-tískuhússins, Raf Simons, hefur slegið í gegn enn og aftur með fallegri og tímalausri hönnun með vorlínunni 2012. Simons gæti þó verið á förum frá Jil Sander því sá orðrómur hefur heyrst að hann taki við af Stefano Pilati hjá Yves Saint Laurent.

Nýr hönnuður Dior

Raf Simons, fyrrverandi yfirhönnuður hjá tískuhúsinu Jil Sander, er nýr hönnuður hjá Christian Dior. Mikið hefur verið skrifað um væntanlegan arftaka Johns Galliano hjá tískuhúsinu og mörg nöfn verið nefnd en nú er loksins komið í ljós að Simons hafi tekið starfinu. Fyrsta fatalína hönnuðarins fyrir Dior kemur fyrir sjónir almennings strax í júlí þegar hátískan, eða haute couture, verður sýnd.

Raf olli ekki vonbrigðum

Hönnuðurinn Raf Simons þótti standa sig með prýði þegar hann frumsýndi fyrstu hátískulínu sína á tískuvikunni í París. Simons tók við sem yfirhönnuður Dior tískuhússins eftir að John Galliano lét af störfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×