Annar stórsigur Börsunga í röð

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Robert Lewandowski.
Robert Lewandowski. Getty/Alex Caparros

Barcelona hefur svarað tapinu gegn Real Madrid á dögunum af krafti í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Í kvöld fengu Börsungar heimsókn frá Athletic Bilbao en Barcelona vann Villarreal í vikunni, 3-0.

Heimamenn gáfu strax tóninn því á tólftu mínútu opnaði Ousmane Dembele markareikninginn eftir stoðsendingu Robert Lewandowski. Sergi Roberto tvöfaldaði forystuna skömmu síðar eftir undirbúning Dembele og á 22.mínútu var komið að Lewandowski að skora eftir stoðsendingu frá Dembele.

Dembele fullkomnaði stoðsendingaþrennu sína í síðari hálfleik þegar hann lagði upp fjórða mark Barcelona fyrir Ferran Torres.

Lokatölur 4-0 fyrir Barcelona sem er þremur stigum á eftir Real Madrid.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira